Viðskipti innlent

Dröfn seld úr landi

Gissur Sigurðsson skrifar
Dröfnin var byggð á Seyðisfirði árið 1981.
Dröfnin var byggð á Seyðisfirði árið 1981. Vísir/stefán
Hafrannsóknaskipið Dröfn hefur verið selt úr landi. Það er væntanlegt til Kanaríeyja í dag þar sem það verður afhent nýjum eigiendum og flýgur áhöfnin heim.

Dröfn var minnsta hafrannsóknaskipið í flota Hafrannsóknastofnunar, en þjónaði hafrannsóknum vel á þriðja áratug.

Ekki liggur fyrir hvort eitthvert skip kemur í staðinn en Hafrannsóknastofnun er þröngt sniðinn stakkurinn fjárhagslega.

Dröfnin var byggð á Seyðisfirði árið 1981 og hét áður Otto Wathne. Lengd skipsins er 26 metrar.

Uppfært 8:56:

Dröfnin hefur verið í einkaeigu og hefur eigandinn nú seld skipið úr landi. Hafrannsóknastofnun var með skipið á leigu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×