Viðskipti innlent

Þrír ráðnir í vöruþróunarteymi Gagarín

Atli Ísleifsson skrifar
Eiður Sveinn Gunnarsson, Haukur Steinn Logason og Hermann Ingi Ragnarsson.
Eiður Sveinn Gunnarsson, Haukur Steinn Logason og Hermann Ingi Ragnarsson. Gagarín
Haukur Steinn Logason, Eiður Sveinn Gunnarsson og Hermann Ingi Ragnarsson hafa verið ráðnir til Gagarín til að sinna þróun Map Explorer. Verkefnið hlaut tveggja ára þróunarstyrk frá Tækniþróunarsjóði fyrr á þessu ári.

Í tilkynningu frá Gagarín segir að Haukur hafi áður verið þróunarstjóri og einn stofnenda Radiant Games þar sem hann starfaði frá árinu 2014 fram til þessa árs.

„Í starfi sínu leiddi Haukur hönnun og smíði á Box Island, leik sem kennir börnum grunngildin í forritun, en hann hefur verið sóttur yfir 500.000 sinnum á heimsvísu. Hann útskrifaðist frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 með BSc gráðu í tölvunarfræði, en hluti af námi hans fór fram við Fraunhofer Center for Experimental Software Engineering.

Eiður Sveinn útskrifaðist með BSc í tölvunarstærðfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2016 og starfaði við hugbúnaðarþróun hjá sprotafyrirtækjum meðfram námi.

Hermann Ingi lauk BA gráðu í ensku frá Háskóla Íslands 2011 og BSc gráðu í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Í námi sínu lagði Hermann Ingi áherslu á þrívíddarforritun og tölvuleikjagerð.

Map Explorer er nýjasta þróunarverkefni Gagarín, en það felur í sér hönnun á stöðluðum, skalanlegum og gagnvirkum sýningarlausnum sem miðla sögum í tíma og rúmi,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×