Golf

Ólafía: Sá þetta fyrir mér og þetta tókst

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía undirbýr pútt á mótinu um helgina.
Ólafía undirbýr pútt á mótinu um helgina. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var kampakát í viðtali eftir að hún lauk keppni í fjórða sæti á Indy Women In Tech-mótinu í Indiana í dag.

Hún hafnaði í fjórða sæti á mótinu sem er hennar besti árangur á mótaröðinni og fer langt með að tryggja þáttökurétt hennar á næstu leiktíð.

„Þetta hefur verið ótrúlega góð vika. Ég var að pútta ótrúlega vel og gera allt mjög vel. Þetta var afar einfalt og það er frábært þegar það er svoleiðis,“ sagði Ólafía sem vippaði fyrir erni á lokaholunni í dag en það fleytti henni upp í fjórða sætið að lokum.

„Ég átti geggjaða æfingasveiflu og svo bara gerði ég alveg eins í högginu. Ég sá þetta fyrir mér og þetta tókst,“ sagði hún.

Næsta mót Ólafíu Þórunnar verður Evian Championship sem er síðasta stórmót ársins og þriðja stórmótið hennar Ólafíu á ferlinum.


Tengdar fréttir

Örn á lokaholunni skaut Ólafíu upp í þriðja sætið

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, kom í hús á fjórum höggum undir pari á hringnum og alls ellefu höggum undir pari á lokadegi Indy Women in Tech-mótsins í Indianapolis sem lauk rétt í þessu.

Ólafía Þórunn ein í fjórða sæti í Indianapolis

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, lauk leik í fjórða sæti á Indy Women in Tech-mótsins í Indianapolis sem lauk rétt í þessu með sigri Lexi Thompson en örn Ólafíu á lokaholunni kom henni úr tíunda sæti í það fjórða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×