Menning

Besti leikstjórinn á Cannes 2016 mætir á RIFF

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Síðustu þrjár kvikmyndir Assayas, Aprés maí (2012), Sils Maria (2014) og Personal Shopper (2016), hafa allar hlotið margvíslegar viðurkenningar.
Síðustu þrjár kvikmyndir Assayas, Aprés maí (2012), Sils Maria (2014) og Personal Shopper (2016), hafa allar hlotið margvíslegar viðurkenningar.
Franski leikstjórinn Olivier Assayas verður einn af heiðursgestum RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, sem fram fer 28. september til 8. október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RIFF.

Assayas hefur um árabil verði einn allra fremsti kvikmyndagerðarmaður Frakklands en eftir hann liggja tugir verka sem hlotið hafa fjölda viðurkenninga.

Assayas sló í gegn á 10. áratug síðustu aldar með kvikmyndinni Irma Vep sem er marglaga listaverk ogóður leikstjórans til kvikmyndaborgarinnar Hong Kong. Eftir aldamót hefur Assayas notið fádæma velgengni en myndir á borð við Les Destinées sentimentales (2000), Demonlover (2002) og Clean (2004) voru allar tilnefndar til Gullpálmans í Cannes. Hann var einn þeirra 22 leiksjtóra sem fengu þann heiður að taka þátt í Paris, je t’aime (2006) og leikstýrði einnig sjónvarpsþáttaröðinni Carlos, sem fjallaði um ævistarf hryðjuverkamannsins Carlos „sjakala“ en þáttaröðin naut mikillar hylli meðal gagnrýnenda sem áhorfenda.

Síðustu þrjár kvikmyndir Assayas, Aprés maí (2012), Sils Maria (2014) og Personal Shopper (2016), hafa allar hlotið margvíslegar viðurkenningar. Fyrir þá síðastnefndu var Assayas verðlaunaður sem besti leikstjórinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes, sem er einn æðsti heiður sem leikstjóra getur hlotnast. Á RIFF verður yfirlitssýning á verkum Assayas auk þess sem hann verður aðdáendum og ungu kvikmyndagerðarfólki innan handar á sérstökum masterclass-fyrirlestri.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×