Hringrás sögð menga of mikið fyrir Gunnunes Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. ágúst 2017 06:00 Þolinmæði borgaryfirvalda gagnvart umsvifum Hringrásar í Klettagörðum minnkaði hratt með hverjum eldsvoðanum eftir annan. vísir/vilhelm
Ef starfsemi Björgunar hf. flyst á Gunnunes á Álfsnesi til viðbótar við umsvif Sorpu og aðra uppbyggingu verður náð þolmörkum fyrir viðkvæma náttúru svæðisins segir skrifstofa umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg sem telur óheppilegt að endurvinnslufyrirtækið Hringrás hf. fái lóð á Gunnunesi. „Enn meiri uppbygging iðnaðar á svæðinu væri því alls ekki skynsamleg með tilliti til umhverfissjónarmiða. Þá er bæði átt við rask vegna uppbyggingar iðnaðarsvæða og nauðsynlegra innviða svo sem vegagerðar en einnig röskun og mengunarhættu vegna starfseminnar þar með talinnar skipaumferðar og umferðar ökutækja,“ segir í umsögn skrifstofu umhverfisgæða. Lengi hefur legið fyrir að borgaryfirvöld og Faxaflóahafnir, eigandi núverandi lóðar undir Hringrás, vilja losna við fyrirtækið úr Laugarnesinu. Hringrás hefur augastað á Gunnunesi á Álfsnesi. Skipulagsfulltrúi leggst ekki gegn því fyrir sitt leyti en bendir á að skoða þurfi umhverfisþætti nánar. Skrifstofa umhverfisgæða hjá borginni segir ekki heppilegt að Hringrás flytji á Gunnunes jafnvel þótt Björgun myndi flytja þangað eins og er til skoðunar. „Taka þarf ákvörðun með viðeigandi skipulagsbreytingum um hvort svæðið í heild sinni eigi að vera iðnaðarsvæði eða ekki og ef svo er, hversu mikið, frekar en að gerðar séu endurteknar litlar aðalskipulagsbreytingar á svæðinu í bútum,“ segir skrifstofa umhverfisgæða sem telur að að minnsta kosti eigi stærsti hluti Gunnuness að vera áfram opið svæði með óraskaðri náttúru.Þá segir að ekki hafi staðið til að byggð af nokkru tagi rísi á Gunnunesi. Þess utan sé ekki svigrúm fyrir viðbótar 15 til 20 þúsund fermetra uppbyggingarsvæði innan þess svæðis sem mælt hafi verið með fyrir Björgun. „Eins og komið hefur fram þá eru önnur svæði á Gunnunesinu ekki talin heppileg fyrir nokkra uppbyggingu, sérstaklega ekki uppbyggingu iðnaðarsvæða, vegna neikvæðra umhverfisáhrifa og minjaverndar,“ segir umhverfisgæðaskrifstofan. Þá sé töluverður munur á starfsemi Hringrásar og Björgunar. Starfsemi Hringrásar snúist að miklu leyti um flutning og meðhöndlun á mengandi úrgangi og óæskilegum efnum en Björgun vinni fyrst og fremst með náttúruleg jarðefni. Hætta á mengunarslysum sé töluvert meiri hjá Hringrás. „Má benda á að það hafa orðið að minnsta kosti þrír brunar frá árinu 2004 á núverandi starfsstöð við Klettagarða,“ segir í umsögninni þar sem mælt er með því að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gefi álit á mengunarhættu af starfsemi beggja fyrirtækjanna. Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur er Gunnunes sem og öll suður- og vesturströnd Álfsness skilgreind sem opið svæði. Umhverfisgæðaskrifstofan bendir á að í umsögn umhverfis- og skipulagssviðs frá í október 2016 komi fram að Gunnunesið almennt henti illa sem iðnaðarsvæði vegna náttúrufars og ásýndar sem séu þættir sem talið hafi verið mikilvægt að vernda. „Í því sambandi var meðal annars rætt um upprunalega strandlengju, mólendis- og votlendisgróðurlendi og varplönd fugla.“ Skipulagsfulltrúi hefur vísað málinu til umhverfis- og skipulagsráðs.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Segja upp leigusamningi Hringrásar Fyrirtækið fær frest til að flytja sig og ber að hreinsa lóðina eftir sig. 9. desember 2016 15:28 Gert ráð fyrir að Hringrás flytji fyrir lok næsta árs: „Þetta er staðsetning sem er barns síns tíma“ Hafnarstjóri segir að staðsetning Hringrásar sé barns síns tíma. 9. desember 2016 16:19 Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Hver er Kári Hansen? Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Fleiri fréttir Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Sjá meira
Segja upp leigusamningi Hringrásar Fyrirtækið fær frest til að flytja sig og ber að hreinsa lóðina eftir sig. 9. desember 2016 15:28
Gert ráð fyrir að Hringrás flytji fyrir lok næsta árs: „Þetta er staðsetning sem er barns síns tíma“ Hafnarstjóri segir að staðsetning Hringrásar sé barns síns tíma. 9. desember 2016 16:19