Innlent

Þrír hand­teknir fyrir ógnandi hegðun í þremur að­skildum málum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Lögregla handtók einn í nótt sem er grunaður um sölu og dreifingu lyfja.
Lögregla handtók einn í nótt sem er grunaður um sölu og dreifingu lyfja. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum útköllum í nótt vegna einstaklinga sem voru til vandræða og handtók meðal annars mann á Austurvelli sem var að áreita gesti á bar í nágrenninu með ógnandi hegðun.

Lögregla var einnig kölluð til vegna ölvaðs einstaklings sem hafði í hótunum við afgreiðslufólk á bensínstöð. Þegar lögregla kom á vettvang kannaðist maðurinn ekki við neitt en var vísað á brott.

Skömmu síðar barst lögreglu önnur tilkynning um mann með hótanir í verslun skammt frá og reyndist um sama einstakling að ræða. Hann streittist á móti við handtöku og gisti fangageymslu í nótt.

Enn annað útkall barst þar sem lögregla og sjúkraflutningamenn voru kallaðir til þar sem einstaklingur sagðist hafa orðið fyrir líkamsárás. Þegar komið var á vettvang brást viðkomandi hins vegar ókvæða við og sýndi af sér ógnandi hegðun í garð lögreglu og sjúkraliði.

Voru tilraunir gerðar til að tala manninn til en hann náði ekki stjórn á sér og var handtekinn eftir að hafa brotið rúðu í hamaganginum. Málið er í rannsókn.

Lögregla aðstoðaði einnig leigubílstjóra sem átti í vandræðum með farþega sem neitaði að borga fargjaldið. 

Þá sinnti hún útkalli vegna þjófnaðar í gleraugnaverslun. Gat verslunareigandi gefið nokkuð greinagóða lýsingu á gerandanum og málið er í rannsókn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×