Erlent

Fjörutíu og átta særðir í lestarslysi í Barcelona

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Francia-lestarstöðin í Barcelona.
Francia-lestarstöðin í Barcelona. Vísir/AFP
Að minnsta kosti 48 eru særðir, þar af 5 alvarlega, eftir að lest lenti í árekstri á lestarstöð í Barcelona í morgun. BBC greinir frá.

Mikill erill var á Francia-lestarstöðinni í miðborg Barcelona þegar slysið varð um klukkan 7:15 að staðartíma. Lestin var á leið frá bænum Sant Vicenc de Calders í norðausturhluta Katalóníu.

Hlúð var að flestum hinna særðu á brautarpallinum. 18 hafa verið fluttir á sjúkrahús vegna slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×