Framtíð þar sem farþegar fái borgað fyrir að fljúga með Wow Air Ingvar Þór Björnsson skrifar 15. júlí 2017 12:24 Flugfélög hafa að undanförnu kappkostað við að dreifa tekjumöguleikum Mynd/Anton Brink
Skúli Mogensen, forstjóri WOW-Air, spáir framtíð þar sem „við munum borga þér fyrir að fljúga með okkur“. Þetta sagði hann í viðtali við Business Insider sem birtist í dag. Flugfélög hafa að undanförnu kappkostað við að dreifa tekjumöguleikum og í leiðinni stefnt að því að hætta að treysta á tekjur í gegnum miðasölu. Ríkari áhersla er þá á tekjur í gegnum viðbótargjöld. Þar að auki er meira um hagstætt samstarf við hótelkeðjur, veitingastaði, bílaleigur og annars konar ferðafyrirtæki til að tryggja getu þeirra til að afla tekna frá öllum hliðum farþegafyrirækja og ferðaþjónustu. „Markmiðið okkar, sem við vinnum að hörðum höndum, er að viðbótartekjurnar okkar verði meiri en farþegatekjurnar okkar. Flugfélaginu sem tekst að vera fyrst til að láta þetta virka mun gjörbreyta atvinnugreininni,“ sagði Skúli í samtali við Business Insider.WOW hyggst ganga enn lengra hvað varðar þátttöku viðskiptavina. „Persónulegra samband byggt á fyrri kröfum og þörfum,“ segir Skúli. Þar að auki er WOW að skoða nýjar leiðir til að umbuna farþegum sínum fjárhagslega. Þetta felur í sér hugsanlegar greiðslur til farþega þar sem samfélagsmiðlar geta búið til viðskipti fyrir WOW. Hugmyndin er þá að viðskiptavinirnir auglýsi flugfélagið. „Samfélagsmiðlar og ný tækni bjóða upp á margskonar ný tækifæri. Fólk tekur mikið af myndum og miðlar upplifun sinni á ferðalögum. Við sjáum margar áhugaverðar leiðir til að styrkja fólk til að dreifa orðinu um WOW og umbuna þeim í samræmi við það," bætir Skúli við.
Mest lesið Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira