Golf

Choi og Kang efstar og jafnar fyrir lokadaginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Chella Choi tapaði ekki höggi á þriðja hringnum í gær.
Chella Choi tapaði ekki höggi á þriðja hringnum í gær. vísir/getty
Chella Choi frá Suður-Kóreu og Danielle Kang frá Bandaríkjunum eru efstar og jafnar fyrir lokadaginn á PGA-meistaramótinu í golfi. Mótið fer fram á Olympia Fields vellinum í Chicago.

Choi og Kang eru báðar á 10 höggum undir pari. Choi spilaði á fjórum höggum undir pari í gær á meðan Kang lék á þremur höggum undir pari.

Jiyai Shin frá Suður-Kóreu er í 3. sæti á átta höggum undir pari og Brooke M. Henderson, sem vann mótið í fyrra, í því fjórða á sjö höggum undir pari.

Hin suður-kóreska So Yoen Ryu, efsta kona heimslistans, er í 7.-16. sæti á fimm höggum undir pari.

Sýnt verður beint frá lokadegi mótsins og hefst útsending klukkan 19:00 á Stöð 2 Sport 4 HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×