Viðskipti erlent

Bandarískir bankastjórar fá þrefalt meira borgað en aðrir

Kjartan Kjartansson skrifar
Bankastjórar utan Bandaríkjanna eru ekki einu sinni hálfdrættingar starfsbræðra sinna þar.
Bankastjórar utan Bandaríkjanna eru ekki einu sinni hálfdrættingar starfsbræðra sinna þar. Vísir/EPA
Bankastjórar í Bandaríkjunum hafa fengið þrefalt meira borgað en starfsfbræður þeirra í öðrum löndum að meðaltali síðustu þrettán árin. Úttekt á launum bankastjóra í nokkrum löndum leiðir í ljós að launin í Bandaríkjunum eru óbreytt frá því að efnahagshrunið dundið yfir árið 2008.

Ráðgjafafyrirtækið Bernstein kannaði laun bankastjóra tuttugu og fimm banka í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu frá árinu 2004. Niðurstaðan var að laun Bandaríkjamannanna hafa verið hærri allt tímabilið, að því er kemur fram í frétt Financial Times.

Bandarísku bankastjórarnir fengu að meðaltali tuttugu milljónir dollara á ári fyrir hrunið 2008. Meðallaunin hafa verið þau sömu undanfarin þrjú ár samkvæmt úttektinni.

Launin hafa því haldist há þrátt fyrir lög og reglur sem settar voru í kjölfar hrunsins og takmörkuðu hversu mikinn arð bankastjórarnir gætu tekið út úr hlutabréfaeign sinni borið saman við góðærðið fyrir hrun.

Þrátt fyrir að launamunur bandarískra bankastjóra og erlendra starfsbræða þeirra hafi verið rúmlega þrefaldur í fyrra og hafi ekki verið meiri frá árinu 2006 þá bliknar hann í samanburði fyrir muninn sem var við lýði á fyrsta áratugi þessarar aldar. Þá voru bandarískir bankastjórar með tæplega sjöföld laun á við alþjóðlega kollega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×