Viðskipti innlent

Aðalsteinn til Icewear

Sæunn Gísladóttir skrifar
Aðalsteinn Pálsson.
Aðalsteinn Pálsson. Mynd/Icewear
Aðalsteinn Pálsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Icewear. Hjá Icewear mun Aðalsteinn sinna daglegum rekstri markaðsdeildar og bera ábyrgð á stefnumótun markaðsmála fyrirtækisins, ásamt samskiptum við fjölmiðla og samstarfsaðila. 

Í tilkynningu kemur fram að Aðalsteinn starfaði áður sem framkvæmdastjóri Scandinavian Design & Retail, sem rak verslanir TOPSHOP, OASIS, Principles og COAST í Danmörku, og sinnti eigin verslunarrekstri á Akureyri. Hann er viðskiptafræðingur með áherslu á stjórnun og markaðsmál frá Háskólanum á Akureyri. Þá var Aðalsteinn formaður knattspyrnudeildar Þórs á Akureyri frá árinu 2012 til 2017. 

„Það er mikill fengur fyrir okkur hjá Icewear að fá svona reynslumikinn mann í liðið. Aðalsteinn hefur gríðarlega reynslu af verslunarrekstri, bæði hér á Íslandi og erlendis, og er góð viðbót við þann öfluga hóp sem starfar hjá fyrirtækinu. Við höfum vaxið hratt undanfarin misseri og það eru mörg spennandi verkefni framundan þar sem reynsla Aðalsteins mun nýtast vel,“ segir Ágúst Þór Einarsson, eigandi Icewear í tilkynningu.

Icewear er í eigu Drífu ehf og starfa um 130 starfsmenn hjá fyrirtækinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×