Viðskipti innlent

Kvika gerir kauptilboð í allt útgefið hlutafé Virðingar

Atli Ísleifsson skrifar
Ef af kaupunum verður er stefnt að því að sameina Kviku og Virðingu.
Ef af kaupunum verður er stefnt að því að sameina Kviku og Virðingu. VÍSIR/GVA
Stjórn Kviku hefur gert 2.560 milljóna króna kauptilboð í allt hlutafé Virðingar. Ef af kaupunum verður er stefnt að því að sameina félögin.

Í tilkynningu frá Kviku segir að greitt verði með reiðufé. „Kaupin eru háð ákveðnum skilyrðum, þar á meðal samþykki hluthafa beggja félaga og samþykkis eftirlitsstofnana.

Stjórn Virðingar hefur móttekið kauptilboðið og ákveðið að beina því til hluthafa félagsins.

Fyrir nokkru síðan var undirritaður samningur um kaup Virðingar á ÖLDU sjóðum hf. Verði tilboði Kviku til hluthafa Virðingar hf. tekið, er sá samningur háður endanlegu samþykki Kviku og hluthafa Öldu.

Kauptilboðið gildir til kl. 16:00 þann 30. júní næstkomandi. Ef samþykki að lágmarki 90% hluthafa Virðingar fæst fyrir þann tíma er stefnt að boðun hluthafafundar í Kviku um miðjan júlí,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×