Viðskipti innlent

Eigandi Prooptik í hluthafahóp Kviku

Hörður Ægisson skrifar
Á árinu 2016 nam hagnaður Kviku um tveimur milljörðum.
Á árinu 2016 nam hagnaður Kviku um tveimur milljörðum.
Gunnar Henrik B. Gunnarsson, fjárfestir og eigandi gleraugnaverslunarinnar Prooptik, er kominn í hluthafahóp Kviku fjárfestingarbanka með rúmlega tveggja prósenta eignarhlut sem hann á óbeint í gegnum eignarhaldsfélagið RES II.

Gunnar keypti hlutinn af breska fjárfestinum Don McCarthy, fyrrverandi stjórnarformanni House of Fraser, en hann átti helmingshlut í fjárfestingarfélaginu Grandier, sem var með samtals sjö prósenta eignarhlut í Kviku, á móti fjárfestinum Sigurði Bollasyni. Félagið RES II hefur núna tekið yfir hlut Grandier samhliða því að McCarthy hefur losað um fjárfestingu sína í bankanum en félagið seldi einnig fyrir skemmstu átta prósenta hlut sinn í tryggingafélaginu VÍS. McCarthy hefur dregið úr fjárfestingum sínum á Íslandi vegna veikinda sem hann hefur glímt við.

Gunnar á 30 prósenta hlut í félaginu RES II sem á aftur sjö prósent í Kviku.
Sigurður hefur á sama tíma aukið lítillega við hlut sinn í Kviku og fer núna með rúmlega fimm prósenta eignarhlut í bankanum í gegnum félagið RES II sem er í eigu hans og Gunnars. Auk þess að vera hluthafi í Kviku á Gunnar, ásamt eiginkonu sinni Lovísu Ólafsdóttur, meðal annars 9,5 prósenta hlut í verðbréfafyrirtækinu ALM Verðbréf.

Félagið Grandier eignaðist sjö prósenta hlutinn í Kviku í lok nóvember í fyrra. Á sama tíma og Sigurður og McCarthy komu inn í hluthafahóp bankans fyrir um sjö mánuðum keyptu hjónin Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Örn Þórðarson, fyrrverandi aðaleigendur Skeljungs, átta prósenta hlut í Kviku í gegnum félagið K2B fjárfestingar. Þau eiga sömuleiðis um átta prósent í VÍS og er Svanhildur Nanna stjórnarformaður félagsins.

Á árinu 2016 nam hagnaður Kviku um tveimur milljörðum og arðsemi eigin fjár var 34,7 prósent. Þá var hagnaður bankans eftir skatta á fyrsta fjórðungi þessa árs tæplega 400 milljónir, sem var talsvert umfram áætlun. Stærsti hluthafi Kviku er VÍS með um 25 prósent. Á meðal annarra helstu hluthafa bankans, fyrir utan RES II og KB2 fjárfestingar, eru Lífeyrissjóður verslunarmanna, Brimgarðar ehf., Varða Capital og fjárfestingarfélagið Sigla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×