Erlent

Eiginmaður Bretadrottningar lagður inn á sjúkrahús

Kjartan Kjartansson skrifar
Filipus, hertogi af Edinborg, er orðinn 96 ára gamall.
Filipus, hertogi af Edinborg, er orðinn 96 ára gamall. Vísir/EPA
Filipus, hertogi af Edinborg og eiginmaður Elísabetar Bretadrottningar, var lagður inn á sjúkrahús í varúðarskyni í nótt, að sögn talsmanns konungsfjölskyldunnar.

Í frétt breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að hertoginn liggi á Sjúkrahúsi Játvarðs konungs sjöunda í London vegna sýkingar sem tengist fyrri veikindum hans. Hann sé að öðru leyti hress og ekki sé ástæða til að hafa miklar áhyggjur af sjúkrahússdvöl hans.

Í síðasta mánuði tilkynnti Filipus, sem er 96 ára gamall, að hann ætlaði að draga sig í hlé frá opinberum skyldum í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×