Viðskipti innlent

Semja um 190 milljóna lóðarskuld kísilversins

Haraldur Guðmundsson skrifar
Verksmiðja United Silicon stendur á lóðinni Stakksbraut 9 í Helguvík.
Verksmiðja United Silicon stendur á lóðinni Stakksbraut 9 í Helguvík. Fréttablaðið/Vilhelm
Reykjaneshöfn og eigandi lóðar United Silicon í Helguvík hafa samið um uppgjör á 190 milljóna króna lóðargreiðslu sem hafði verið í vanskilum síðan í nóvembermánuði árið 2015. Dráttarvextir nema þar af 30 milljónum króna en fimm ár eru liðin síðan lóðin var seld.

„Þetta er ekki lengur í vanskilum og greiðslur hafa átt sér stað þó skuldin sé ekki greidd að fullu. Menn horfa björtum augum til framtíðar,“ segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, sem undirritaði samkomulagið við lóðareigandann Geysi Capital ehf. um miðjan júní.

Höfnin seldi lóðina árið 2012, á 362 milljónir króna, til Stakksbrautar 9 ehf. sem síðar rann inn í Sameinað sílikon hf. (United Silicon).

Tveimur árum síðar eignaðist Geysir Capital, sem er í eigu hollenska félagsins USI Holding BV, lóðina, en þeir Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, og Auðun Helgason, lögmaður og stjórnarformaður Geysis og fyrrverandi stjórnarmaður kísilversins, hafa verið í forsvari fyrir félagið.

Kaupverðinu var skipt í fjórar greiðslur og voru fyrstu tvær greiddar á settum tíma eða alls 200 milljónir króna.

Þriðja greiðslan var upp á 100 milljónir, var á gjalddaga í nóvember 2015 og fór í innheimtu hjá lögfræðingi hafnarinnar nokkrum mánuðum síðar.

Síðustu 62 milljónirnar átti svo að greiða í apríl í fyrra. Auðun sagði í ágúst 2016 að vanskilin mætti rekja til tafa á hafnarframkvæmdum Reykjaneshafnar, sem er í eigu Reykjanesbæjar, í Helguvík.

Magnús hætti svo í stjórn verksmiðjunnar í apríl síðastliðnum en rekstur hennar hefur gengið illa allt frá gangsetningu í nóvember í fyrra og líkt og greint hefur verið frá verið plagaður af mengunaróhöppum.

Samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið hefur undir höndum hófst vinna að samkomulaginu um síðustu greiðslurnar tvær rétt eftir áramót. Þar var samið við Geysi Capital en United Silicon hefur einnig viðurkennt greiðsluskyldu. Þá hefur blaðið heimildir fyrir því að ráðgert sé að Geysir renni svo síðar á árinu inn í rekstrarfélag kísilversins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×