Formúla 1

Hamilton: Mest spennandi hringur ársins

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kimi Raikkonen, Lewis Hamilton og Valtteri Bottas voru þrír hröðustu menn dagsins.
Kimi Raikkonen, Lewis Hamilton og Valtteri Bottas voru þrír hröðustu menn dagsins. Vísir/Getty
Lewis Hamilton tryggði sér sinn 66. ráspól í Formúlu 1 í dag. Hann var ósnertanlegur í dag. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Þetta var mest spennandi hringur ársins. Pressan var mikil vegna þess að við vorum að glíma við að hita upp dekkin. Ég var alls ekki viss um að einn hringur myndi duga til að ná upp hita. Ég vissi að Valtteri væri á góðum hring því ég sá hann á undan mér. Ég er alsæll,“ sagði Hamilton.

„Ég er vonsvikinn með þetta, ég ætlaði mér að ná ráspól. Ég var í vandræðum með að ná hita í vinstra framdekkið. Lewis náði góðum hring, ég er vonsvikinn en þetta er annað sæti,“ sagði Valtteri Bottas sem varð annar á Mercedes.

„Augljóslega er betra að vera þriðji en fjórði. Það er erfitt að hita upp dekkin. Sem betur fer gekk ágætlega að hita dekkin sem skilaði smá hraða en með enn meiri upphitun hefði verið hægt að fara mun hraðar,“ sagði Kimi Raikkonen sem varð þriðji í dag á Ferrari bílnum.

„Ég er ekkert sérstaklega sáttur við fimmta sæti. Ég var að lenda í vandræðum með skiptingarnar á beina kaflanum sem er ekki gott,“ sagði Max Verstappen sem varð fimmti í dag.

„Niðurstaðan er ágæt, en ég er alls ekki sáttur. Að endingu var ég einn með engann til að draga mig áfram á beina kaflanum. Ætli það hafi ekki verið í besta falli hægt að ná þriðja sæti í dag,“ sagði Sebastian Vettel sem varð fjórði í dag.

„Við erum búin að vinna mikið í uppstillingu bílsins. Við snérum aftur til fyrri uppstillingar og það virðist sem það henti mér betur,“ sagði Lance Stroll sem varð áttundi á Williams bílnum. Hann var í fyrsta skipti fljótari en Felipe Massa, liðsfélagi sinn.


Tengdar fréttir

Monisha Kaltenborn hætt hjá Sauber

Monisha Kaltenborn hefur yfirgefið stöðu sína sem liðsstjóri Sauber. Kaltenborn varð fyrsta konan til að verða liðsstjóri í Formúlu 1 árið 2012 þegar hún tók við stöðunni hjá Sauber.

Lewis Hamilton á ráspól í Aserbaídsjan

Lewis Hamilton á Mercede var lang fljótastur í tímatökunni í Bakú, hann verður á ráspól á morgun. Valtteri Bottas varð annar á Mercedes og Kimi Raikkonen á Ferrari þriðji.

Max Verstappen fljótastur á föstudegi í Bakú

Max Verstappen á Red Bull var fljótastur á báðum föstudagsæfingunum fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Bakú á sunnudag. Red Bull virðist eiga raunverulega möguleika á ráspól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×