Engin tilboð bárust í eignir Háskólans á Bifröst Kristinn Ingi Jónsson skrifar 26. júní 2017 07:00 Hótelið og fasteignirnar sem eru til sölu eru í eigu Háskólans á Bifröst. vísir/pjetur
Ekki bárust tilboð í Hótel Bifröst eða aðrar fasteignir Háskólans á Bifröst sem boðnar voru til sölu í vor. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins eru þó einhverjar þreifingar í gangi um möguleg kaup á eignunum, en ekki er talið að málin skýrist fyrr en í næstu eða þarnæstu viku. Tilkynnt var um áform háskólans um að selja eignirnar, ásamt rekstri hótelsins, í apríl síðastliðnum. Hótelið hefur verið í rekstri frá árinu 2013 og tilheyrir því 51 herbergi auk veitingasalar í rekstri. Auk þess voru sett á sölu tvö fjölbýlishús með 48 íbúðum sem nýst geta undir hótelrekstur og þá bauðst fjárfestum einnig til kaups fjölbýlishús með möguleika á frekari stækkun, alls 88 herbergi. Ráðgjöfum Capacent var falið að annast söluna.Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á BifröstÍ boði var að kaupa eignirnar, sem og rekstur hótelsins, að hluta eða öllu leyti og voru þær verðmetnar á bilinu 1,5 til 2,5 milljarðar króna. Í tilkynningu frá skólanum á sínum tíma kom fram að eignirnar hefðu verið settar á sölu til að bregðast við fækkun sem hafði orðið í staðnámi hjá skólanum. Ekki væri lengur sama þörf og áður fyrir húsnæði á svæðinu. Um áttatíu prósent af nemendum skólans eru í fjarnámi. Auk þess hefur skólinn glímt við fjárhagserfiðleika undanfarin ár og er sölunni á eignunum þannig ætlað að bæta fjárhagsstöðuna og gera skólanum kleift að greiða niður skuldir. Alls varð 55 milljóna króna tap af rekstri skólans árið 2015 og var eigið fé þá neikvætt um 155 milljónir. Unnið hefur verið að endurskipulagningu rekstrarins síðustu ár.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Viðskipti innlent Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Viðskipti innlent Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Viðskipti innlent VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Samstarf Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Viðskipti innlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Sjá meira