Viðskipti innlent

Íslandsbanka stefnt út af lógódeilu í turninum

Haraldur Guðmundsson skrifar
Íslandsbanki fór fram á að nafni Norðurturnsins yrði breytt í Íslandsbankaturninn. Sú krafa féll í grýtta jörð.
Íslandsbanki fór fram á að nafni Norðurturnsins yrði breytt í Íslandsbankaturninn. Sú krafa féll í grýtta jörð. vísir/gva
LS Retail hefur stefnt eiganda Norðurturnsins við Smáralind og Íslandsbanka eftir að kröfu hugbúnaðarfyrirtækisins um að það fái að hengja vörumerki sitt utan á bygginguna var hafnað. Stefnan verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á miðvikudag.

Harðar deilur milli leigutaka í Norðurturninum komu, eins og Fréttablaðið hefur greint frá, upp eftir að Íslandsbanki tilkynnti að höfuðstöðvar fyrirtækisins yrðu fluttar í Norðurturninn. Samkvæmt stefnunni, sem blaðið hefur undir höndum, gerir LS Retail kröfu um að ógild verði með dómi ákvörðun Norðurturnsins hf. um að Íslandsbanki megi einn leigutaka setja upp vörumerki á stigahús hennar. Hugbúnaðarfyrirtækið gerir kröfu um að lógó Íslandsbanka verði fært niður og að vörumerki LS Retail verði staðsett fyrir ofan það.

Samkvæmt stefnunni var LS Retail, sem er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki og leigir fimm hæðir í turninum, fyrsti leigutakinn til að ganga til samninga við Norðurturninn eða í nóvember 2015. Á þeim tíma hafi eingöngu staðið til að turninn yrði merktur lógói Smáralindar. Það hafi síðan breyst með tilkynningu Íslandsbanka í apríl í fyrra. Stjórnendur LS Retail hafi einnig í júní 2016 mótmælt harðlega áformum um að heiti byggingarinnar yrði breytt í Íslandsbankaturninn og að lógó dótturfélaganna Ergo og VÍB yrðu einnig hengd utan á hana.

LS Retail skorar í stefnunni á Norðurturninn að leggja fram uppfærða hluthafaskrá Norðurturnsins en Íslandsbanki er einn eigenda byggingarinnar og átti í mars 2016 alls 22,85 prósenta hlut. Einnig að Íslandsbanki leggi fram lánasamninga hans við Norðurturninn og leigusamning Íslandsbanka.

Sigrún Dóra Sævinsdóttir, rekstrarstjóri LS Retail, sagði í samtali við Fréttablaðið þann 16. júní að fyrirtækið fari fram á að jafnræðis verði gætt varðandi merkingar utan á húsinu. LS Retail hafi ítrekað lagt fram málamiðlunartillögur sem hafi verið hafnað. Ríkharð Ottó Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Norðurturnsins, vildi þá ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×