Erlent

Handtekinn vegna gruns um áform um hryðjuverk í Berlín

Atli Ísleifsson skrifar
Lögreglumenn að störfum í Berlín.
Lögreglumenn að störfum í Berlín. Vísir/AFP
Lögregla í Þýskalandi hefur handtekið sautján ára Sýrlending vegna gruns um að hafa ætlað sér að fremja sjálfsvígssprengjuárás í Berlín. Maðurinn hafði sótt um hæli í landinu.

Karl Heinz Schröter, innanríkisráðherra sambandsríkisins Brandenburg, segir að maðurinn hafi verið handtekinn í Uckermark, norðaustur af Berlín við landamærin að Póllandi.

Í frétt BBC segir að frekari upplýsingar um áform mannsins hafi enn ekki verið gefnar upp.

Fjölmargar árásir voru gerðar í Þýskalandi á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×