Erlent

Grunur um undirbúning hryðjuverks

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Minningarathöfn í Stokkhólmi um fórnarlömb hryðjuverks.
Minningarathöfn í Stokkhólmi um fórnarlömb hryðjuverks. vísir/afp
Sænska öryggislögreglan fylgist nú með hópi einstaklinga sem grunaðir eru um að undirbúa hryðjuverk. Þetta kemur fram í leynilegum gögnum sem Dagens Nyheter hefur undir höndum.

Viðbúnaðarstig hefur ekki verið hækkað í Svíþjóð vegna þessa, heldur er það enn á stigi þrjú af fimm.

Vegna beiðni öryggislögreglunnar greindi blaðið hvorki frá því hvar eftirlitið fer fram né hvaða aðferðum er beitt í umfjöllun sinni um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×