Erlent

27 fórust og yfir 100 særðust í tveimur hryðjuverkaárásum

Hermenn, viðbragðsaðilar og vegfarendur standa yfir braki bílsins sem brúkaður var við ísbúðina.  NORDICPHOTOS/AFP
Hermenn, viðbragðsaðilar og vegfarendur standa yfir braki bílsins sem brúkaður var við ísbúðina. NORDICPHOTOS/AFP
ÍRAK Minnst 27 fórust og yfir hund­rað særðust í tveimur sprengingum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Íslamska ríkið (ISIS) hefur lýst því yfir að samtökin beri ábyrgð á annarri árásinni en sú seinni er einnig brennd marki þeirra. Fyrri sprengjunni hafði verið komið fyrir í bíl sem lagt var við vinsæla verslunargötu í hverfi sjía-múslima. Flestir hinna látnu voru viðskiptavinir ísbúðar sem höfðu í hyggju að gera vel við sig og kæla sig niður. Ramadan, föstumánuður múslima, er nýgenginn í garð og gera hinir fastandi oft vel við sig eftir að sólin er sest. Minnst sextán létust, þar af nokkur börn, og tæplega 80 særðust. „Fjölskyldur höfðu farið út til að gera vel við sig að föstu lokinni. Sprengjan sprakk skömmu eftir miðnætti, á heitum degi, við vinsæla götu. Þetta miðaði allt að því marki að skaða sem flesta,“ segir Hayder al-Khoei, sérfræðingur í málefnum Miðausturlanda, við Al-Jazeera. Sú síðari var einnig bílsprengja en hún sprakk skammt frá brú yfir Tígris í Al-Shahada hverfinu. Ellefu létust og yfir fjörutíu særðust. Hinir látnu voru flestir í biðröð eftir afgreiðslu hjá tryggingastofnun í borginni. Mikil skelfing braust út í hverfinu eftir árásina enda Karrada-árásin í júlí á síðasta ári, þar sem rúmlega 300 manns fórust og 240 særðust, fólki í fersku minni. Sú árás átti sér stað á fjölfarinni verslunargötu sem var full af fólki að versla á ramadan. Óttuðust margir frekari árásir núna. Meirihluti Íraka, tæplega tveir af hverjum þremur, eru sjía-múslimar. Þrjátíu prósent eru súnní-múslimar. Liðsmenn ISIS aðhyllast, að minnsta kosti að nafninu til, súnní-íslam og álíta sjía-múslima vera villutrúarmenn og heiðingja. Flestar árásir þeirra beinast því að sjía-múslimum. Árásirnar nú telja menn að séu hefndaraðgerð eftir að íraski herinn hóf að hrekja ISIS á brott úr Mósúl. Samtökin náðu borginni á sitt vald um mitt ár 2014. Bardagar hafa geisað í borginni nú í átta mánuði en yfirmenn í íraska hernum hafa lýst því yfir að með því verði ISIS á bak og burt úr landinu. Vígamenn samtakanna hafa hins vegar svarað með því að setja aukið púður í hryðjuverk sín í landinu. johannoli@frettabladid.is


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×