Erlent

Fualaau vill skilja við dæmdan kennara sinn

Atli Ísleifsson skrifar
Mary Kay Letourneau og Vili Fualaau.
Mary Kay Letourneau og Vili Fualaau. Vísir/AFP
Hinn bandaríski Vili Fualaau hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni Mary Kay Letourneau.

Bandarískir fjölmiðlar hafa lengi fjallað um samband þeirra en það hófst árið 1996 þegar Letourneau var 34 ára og Fualaau tólf ára, en Letourneau starfaði þá sem kennari Fualaau.

Dómstóll í Bandaríkjunum dæmdi svo Letourneau í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir að brjóta kynferðislega gegn barni. Fualaau er nú 33 ára gamall.

Þau Letourneau og Fualaau giftu sig þegar Letourneau hafði afplánað dóm sinn og eiga í dag tvær dætur, átján og tuttugu ára gamlar. Yngri dóttirin kom í heiminn þegar Letourneau var í fangelsi.

Fualaau er nú 33 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×