Viðskipti innlent

Skórisi fær að kaupa Ellingsen

Sæunn Gísladóttir skrifar
S4S á meðal annars skóverslunina Steinar Waage.
S4S á meðal annars skóverslunina Steinar Waage. vísir/ernir
Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup skórisans S4S ehf. á öllu hlutafé í Ellingsen ehf. Heildverslunin S4S ehf., á meðal annars Steinar Waage, Ecco, Kaupfélagið og Skór.is.

Tilkynning um samrunann barst með bréfi til Samkeppniseftirlitsins dagsettu 30. desember 2016. Með kaupunum eignast S4S allt hlutfé í Ellingsen og verður hið keypta félag rekið sem dótturfélag S4S. Fram kemur í áliti Samkeppniseftirlitsins að S4S starfi á markaði fyrir smásölu á skófatnaði annars vegar og á markaði fyrir heildsölu á skófatnaði hins vegar. Ellingsen starfi einnig á þeim mörkuðum en þó aðallega á markaði fyrir innflutning og sölu á útivistar- og lífstílsvörum. Áhrif samrunans muni þó einkum gæta á mörkuðunum fyrir smásölu á skófatnaði annars vegar og heildsölu á skófatnaði hins vegar þar sem starfsemi samrunaaðila skarast.  

Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni á mörkuðum málsins. Því séu ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans.

Markaðurinn greindi frá því í febrúar að fjárfestingarfélagið Sjávarsýn í eigu Bjarna Ármannssonar, fjárfestis og fyrrverandi forstjóra Glitnis, hefði keypt 26 prósenta hlut í S4S í október. Sjávarsýn á meðal annars útivistarvöruverslunina Ellingsen.

Stærsti hluthafi eftir samruna verður Pétur Þór Halldórsson, sem nú er stærsti eigandi S4S, og á um 50 prósenta hlut í félaginu. Aðrir hluthafar í S4S eru Hermann Helgason, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, og Georg Kristjánsson en þeir eiga sín tólf prósentin hvor. S4S var rekið með 111 milljóna króna hagnaði árið 2015.

Hér má lesa ákvörðunina í heild sinni.


Tengdar fréttir

Bjarni Ármanns keypti sig inn í skórisann S4S

Sjávarsýn, fjárfestingarfélag Bjarna Ármannssonar, keypti 26 prósenta hlut í heildversluninni S4S af Ingunni Gyðu Wernersdóttur. Rekur skóverslanirnar Steinar Waage, Ecco, Skór.is, Kaupfélagið, Toppskórinn og Air.is í Smáralind.

Skórisi skoðar samruna við Ellingsen

Heildverslunin S4S ehf., sem á meðal annars Steinar Waage, Ecco, Kaupfélagið og Skór.is, skoðar samruna við Ellingsen samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×