Viðskipti innlent

Salan á 69% í Ölgerðinni í höfn

Haraldur Guðmundsson skrifar
Kaupsamningurinn var undirritaður í október.
Kaupsamningurinn var undirritaður í október. Vísir/Anton Brink
Gengið var endanlega frá sölu á 69 prósenta hlut í Ölgerðinni þann 27. apríl síðastliðinn. Ný stjórn fyrirtækisins var kjörin sama dag og tóku fulltrúar framtakssjóðanna Akurs fjárfestinga og Horns III þá sæti í stjórninni.

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, staðfestir í samtali við Markaðinn að eigendaskiptin séu nú frágengin. Akur og Horn III eru að mestu í eigu lífeyrissjóða og keyptu framtakssjóðirnir 69 prósenta hlutinn ásamt hópi einkafjárfesta. Söluverðið nam um fimm milljörðum króna þegar ekki er tekið tillit til skulda Ölgerðarinnar og handbærs fjár. Kom það fram í dómsmáli sem fyrrverandi hluthafi í Ölgerðinni höfðaði eftir að Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafnaði beiðni hans um lögbann á söluna.

Októ Einarsson, sem á ásamt Andra Þór alls 31 prósents hlut í Ölgerðinni í gegnum OA eignarhaldsfélag ehf., var kjörinn stjórnarformaður fyrirtækisins á fundinum í lok apríl. Hermann Már Þórisson, framkvæmdastjóri Horns III, fór þá inn í stjórn félagsins ásamt Jóhannesi Haukssyni, framkvæmdastjóra hjá Íslandssjóðum sem reka Akur. Það gerðu einnig þær Rannveig Eir Einarsdóttir, forstöðumaður flugþjónustudeildar Icelandair, og Sylvía Kristín Ólafsdóttir, starfsmaður Landsvirkjunar.

Eins og Markaðurinn greindi frá um miðjan mars biðu þáverandi og núverandi eigendur Ölgerðarinnar eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir sölunni í rúma fjóra mánuði að óþörfu. Salan var ekki tilkynningarskyld og úrskurðaði stofnunin endanlega um það í byrjun mars. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×