Erlent

Macron fundar með Tusk og kynnir ríkisstjórn sína

Atli Ísleifsson skrifar
Dagskráin er þétt skipuð hjá Emmanuel Macron Frakklandsforseta fyrstu daga hans í embætti.
Dagskráin er þétt skipuð hjá Emmanuel Macron Frakklandsforseta fyrstu daga hans í embætti. Vísir/AFP
Dagskráin er þétt skipuð hjá Emmanuel Macron Frakklandsforseta í dag þar sem hann mun meðal annars kynna ríkisstjórn sína og eiga fund með Donald Tusk, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins.

Upphaflega stóð til að þeir Macron og Tusk myndu hittast í hádeginu en ákveðið var að breyta dagskránni á þann veg að þeir munu eiga kvöldverðarfund í París klukkan 20 að staðartíma.

Macron hefur talað hlýlega um Evrópusamvinnuna og Evrópusambandið en lagt áherslu á að nauðsynlegt sé að gera breytingar á sambandinu. Macron fundaði með Angelu Merkel Þýskalandskanslara í Berlín á mánudag þar sem þau opnuðu bæði á þann möguleika að gera breytingar á Lissabon-sáttmálanum.

Fjármál nýrra ráðherra til skoðunar

Ný ríkisstjórn verður kynnt í París klukkan 13 að íslenskum tíma. Upphaflega stóð til að ráðherrarnir fimmtán yrðu kynntir til sögunnar í gær en því var frestað um einn dag. Var sú skýring gefin að verið væri að fara yfir einkafjármál ráðherranna einu sinni enn til að koma í veg fyrir möguleg hneykslismál.

Fyrr í vikunni var tilkynnt að hægrimaðurinn og Repúblikaninn Édouard Philippe, borgarstjóri í Le Havre, yrði forsætisráðherra nýrrar stjórnar. Franskir fjölmiðlar hafa rætt um að líkur séu á að sósíalistinn og fráfarandi varnarmálaráðherra, Jean-Yves Le Drian, muni áfram eiga sæti í ríkisstjórninni. Le Drian átti fund með Philippe í gær og var fyrstur manna í fráfarandi ríkisstjórn til að lýsa yfir stuðningi við Macron í kosningabaráttunni.

Lagarde? Hulot? Royal?

Í frétt Aftonbladet segir að orðrómur sé á kreiki um að sjónvarpsfréttamaðurinn Nicolas Hulot kunni að verða ráðherra umhverfismála í nýrri ríkisstjórn. Hulot sóttist eftir að verða forsetaefni Græningja fyrir kosningarnar 2012 en laut þá í lægra handi fyrir Evu Joly.

Önnur nöfn sem hafa verið nefnd til sögunnar sem mögulegir ráðherrar eru sósíalistinn Ségolène Royal, fráfarandi umhverfisráðherra, Christine Lagarde, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, og Evrópuþingmaðurinn Sylvie Goulard.

Fyrsti ríkisstjórnarfundurinn er fyrirhugaður á morgun en á föstudag er búist við að Macron haldi til Mali til fundar við franska hermenn sem þar eru. Á fimmtudaginn í næstu viku mun Macron svo fara á leiðtogafund NATO-ríkja í Brussel þar sem hann mun meðal annars eiga tvíhliða fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Þingkosningar fara fram í Frakklandi 11. og 18. júní.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×