Menning

Borgarleikhúsið svarar kallinu: Sing-along sýningar á Mamma mia

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mamma mia hefuur nú þegar slegið öll met varðandi áhorfendafjölda og eru líkur á að fjöldi seldra miða fari vel yfir 100 þúsund í heildina.
Mamma mia hefuur nú þegar slegið öll met varðandi áhorfendafjölda og eru líkur á að fjöldi seldra miða fari vel yfir 100 þúsund í heildina. mynd/borgarleikhúsið
Borgarleikhúsið hefur ákveðið að bjóða upp á svokallaðar Sing-along sýningar á hinum vinsæla söngleik Mamma mia. Tvær Sing-along sýningar verða, annars vegar þann 7. júní og hins vegar þann 14. júní en seinni sýningin verður næstsíðasta sýning söngleiksins í leikhúsinu þar sem sýningum lýkur þann 15. júní.

Í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu segir að gríðarleg eftirspurn hafi verið eftir því að boðið verði upp á Sing-along sýningar en á slíkum sýningum fá gestir tækifæri til að syngja og dansa með lögunum í söngleiknum.

Þær hafa notið mikilla vinsælda í leikhúsum og kvikmyndahúsum, bæði hér heima og erlendis, en íslenskum söngtextum ABBA-laganna verður varpað á tjald þannig að allir geti sungið með. Þeir sem mæta í búningum fá svo sérstakan glaðning.

Miðasala er hafin á vef Borgarleikhússins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×