Viðskipti erlent

Rísandi sól kínverskra snjallsíma

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Kona virðir fyrir sér F1 Plus síma frá Oppo á snjallsímahátíð í Barcelona.
Kona virðir fyrir sér F1 Plus síma frá Oppo á snjallsímahátíð í Barcelona. Nordicphotos/AFP
Kínverskir snjallsímaframleiðendur hafa sótt í sig veðrið undanfarið. Í nýrri rannsókn frá Counterpoint Research kemur fram að sala á snjallsímum kínverska fyrirtækisins Oppo hafi aukist um 81 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samanborið við sama tímabil árið 2016. Þá seldi vivo 60 prósent fleiri síma og sala á Huawei-snjallsímum jókst um fjórðung.

Þessi mikli uppgangur hefur bitnað á sölu stærstu snjallsímaframleiðenda heims. Seldu Apple og Samsung til að mynda mun færri snjallsíma í Kína á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en í fyrra. 15 prósenta hnignun var hjá Apple og öllu meiri hjá Samsung, alls sextíu prósent.

Þýðir þetta að snjallsímamarkaðurinn í Kína er talsvert frábrugðinn því sem við höfum vanist á Íslandi. Í stað þess að framleiðendur á borð við Apple, Samsung, Google og LG sláist um markaðinn eru þrír kínverskir snjallsímaframleiðendur með samtals rúmlega 54 prósenta markaðshlutdeild.

Alls voru 19,7 prósent seldra snjallsíma á fyrsta ársfjórðungi frá Huawei, samanborið við 16,4 prósent í fyrra. 17,5 prósent frá Oppo en 10,1 prósent í fyrra og 17,1 prósent frá vivo, 11,2 prósent í fyrra.

Til samanburðar var markaðshlutdeild Apple 12,3 prósent en er 10,1 prósent. Samsung var með 8,6 prósenta markaðshlutdeild en hún féll í 3,3 prósent.

En Kínverjar beina sjónum sínum ekki einungis að samlöndum sínum heldur herja þeir einnig á Indlandsmarkað. Samtals búa nærri 2,7 milljarðar í ríkjunum tveimur og því gríðarlega stórir markaðir. Í þremur af efstu fimm sætunum yfir markaðshlutdeild á snjallsímamarkaði í Indlandi má finna þrjá kínverska framleiðendur. Xiaomi, Oppo og vivo.

Þá raða Kínverjar sér í þrjú af efstu fimm sætunum á heimsvísu. Símar Samsung hafa 22,8 prósenta markaðhlutdeild á heimsvísu og Apple 14,9 prósent og hafa því þessir risar yfirburðastöðu. Hins vegar hefur Huawei 9,8 prósenta markaðshlutdeild, Oppo 7,4 prósent og vivo 5,2 prósent. Samtals 22,4 prósent sem er litlu minna en Samsung.

Kínverskir símar eru búnir til úr álíka öflugu innvolsi og símar Apple og Samsung en eru þrátt fyrir það í flestum tilfellum ódýrari. Því hafa þeir einnig vakið áhuga utan Indlands og Kína. Hafa ber þó í huga að innfluttir símar eru ekki allir með móttökurum sem geta tekið á móti 4G merkjum úr íslenskum sendum.


Tengdar fréttir

Hvernig snjallsíma á ég að kaupa mér?

Fréttablaðið rýndi í fjölda snjallsíma til þess að hjálpa til við valið. Litið er til þátta eins og verðs, skjástærðar og framleiðanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×