Viðskipti innlent

Fjárfestir í Rósaseli fyrir tæpan milljarð

Haraldur Guðmundsson skrifar
Svona sjá stjórnendur Kaupfélags Suðurnesja Rósasel fyrir sér.
Svona sjá stjórnendur Kaupfélags Suðurnesja Rósasel fyrir sér. Mynd/KS
Fyrsti áfangi verslunarkjarnans Rósasels, sem er fjárfesting upp á rétt tæpan milljarð króna, verður að óbreyttu fjármagnaður að langstærstum hluta af Kaupfélagi Suðurnesja. Framkvæmdirnar skammt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefjast þó ekki fyrr en í fyrsta lagi í haust en áttu upphaflega að fara af stað fyrir ári síðan.

„Skipulagsmál hafa tafið framvindu verkefnisins en það voru kvaðir á svæðinu meðfram Reykjanesbraut sem voru í gamla skipulagi Keflavíkurflugvallar. Það er verið að létta þessum kvöðum, og breyta aðal- og deiliskipulagi svæðisins, og við erum vongóðir um að framkvæmdir hefjist í ágúst eða september,“ segir Skúli Þ. Skúlason, stjórnarformaður Kaupfélags Suðurnesja.

Áform samvinnufélagsins um að byggja Rósasel, á um 20 þúsund fermetra lóð við síðasta hringtorgið áður en komið er að flugstöðinni, voru kynnt í ársbyrjun 2016 undir vinnuheitinu Rósaselstorg. Framkvæmdum við fyrsta áfanga átti þá að ljúka á þessu ári og í kjölfarið hófst leit að fjárfestum að verkefninu. Í ágúst í fyrra var tilkynnt um viljayfirlýsingar við fjögur fyrirtæki um rekstur í verslunarkjarnanum. Nettó, sem er í eigu Samkaupa, dótturfélags Kaupfélags Suðurnesja, myndi opna matvöruverslun, Olís reka þar bensínstöð og Subway, Pizza Hut, KFC, Taco Bell og Grill 66 veitingastaði.

„Við erum ennþá með viljayfirlýsingar við sömu aðila. Þeir koma einungis inn sem leigutakar en það eru ekki komnir skriflegir leigusamningar því við erum ekki enn komin með lóð og ekkert fast í hendi. Kaupfélag Suðurnesja er því enn sem komið er eini eigandi verkefnisins,“ segir Skúli og svarar aðspurður að heildarkostnaður þes nemi frá tæpum milljarði króna og upp í tæpa þrjá. Í fyrsta áfanga sé gert ráð fyrir 500 fermetra bensínstöð, verslun Nettó upp á þúsund fermetra og eitt þúsund fermetra veitinga- og þjónustuhluta. Áætlað er að framkvæmdir taki um tólf til sextán mánuði eftir að þær komast á fullt skrið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×