Innlent

Bað fyrrverandi tengdaföður sinn afsökunar á Facebook

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Magnús Jónsson, fyrrverandi forstjóri Atorku, er til rannsóknar hjá lögregluyfirvöldum í Texas vegna gruns um heimilisofbeldi.
Magnús Jónsson, fyrrverandi forstjóri Atorku, er til rannsóknar hjá lögregluyfirvöldum í Texas vegna gruns um heimilisofbeldi. Vísir/Hörður
Magnús Jónsson, fyrrverandi forstjóri Atorku, hefur í annað skiptið á árinu beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á Facebook. Sakaði hann fyrrverandi tengdaföður sinn, Þorstein Vilhelmsson, um þjófnað í júlí síðastliðnum en hefur nú dregið ummælin til baka. 

Þorsteinn var á sínum tíma stjórnarformaður Atorku, þar sem Magnús gegndi stjórnarformennsku og varð síðar forstjóri. Atorka varð gjaldþrota eftir fall bankanna haustið 2008. Í dag er Þorsteinn stjórnarformaður Björgunar. 

Þorsteinn Vilhelmsson.Vísir/E.Ól.
Var Magnús í síðustu viku krafinn um afsökunarbeiðni vegna ummælanna og að viðurkenna að þau væru röng. Ella yrði höfðað dómsmál vegna þeirra. Brást Magnús við og setti eftirfarandi skilaboð á Facebook-síðu sína:

„Þann 23. júlí 2016 birti ég færslu hér á Facebook, þar sem ég dróttaði að æru Þorsteins Vilhelmssonar. Sú háttsemi sem ég lýsti í færslunni átti sér aldrei stað og því voru umræddar ásakanir með öllu tilhæfulausar.

Ég bið hér með Þorstein Vilhelmsson afsökunar á hinum tilhæfulausu ásökunum. Ég vil jafnframt biðja þá sem deildu færslunni með hinum tilhæfulausu ásökunum að deila jafnframt þessari afsökunarbeiðni.“

Lögregla stöðvaði bílinn á leiðinni út úr Borgarnesi eftir að maðurinn hafði setið að sumbli í Hyrnunni.Vísir/Vilhelm
Sakaður um endurtekið ofbeldi

Magnús og dóttir Þorsteins voru í sambúð í tæpa tvo áratugi. Hún lýsti endurteknu heimilisofbeldi af hans hálfu í viðtali í Fréttablaðinu á dögunum. Ákvað hún að deila reynslu sinni eftir að Magnús var handtekinn á hóteli í Austin í Texas í Bandaríkjunum grunaður um ofbeldi í garð unnustu sinnar.

Það mál er á borði lögreglunnar í Austin í Texas sem þekkt er fyrir að fara alla leið með heimilisofbeldismál óháð því hvort málin séu kærð eða ekki af brotaþolum.

Síðan þá hefur Magnús verið handtekinn grunaður um ölvun við akstur í Borgarnesi þar sem hann var á ferðalagi með unnustu sinni. Tók hún í framhaldinu við akstri bílsins en taldi öryggi sínu svo ógnað á leiðinni til Reykjavíkur að hún ók bílnum út í kant og hljóp undan unnusta sínum.

Karl Axelsson hæstaréttardómari.Vísir/Valli
Dróttaði að æru hæstaréttardómara

Magnús bað í janúar hæstaréttardómarana Benedikt Bogason og Karl Axelsson afsökunar á ummælum sem hann lét falla á Facebook vegna dóms í máli er sneri að fjárskiptum Magnúsar og fyrrverandi eiginkonu hans í kjölfar skilnaðar þeirra.

Við það tilefni skrifaði Magnús: 

„Þann 13. desember 2016, birti ég færslu hér á Facebook þar sem ég dróttaði að æru hæstaréttardómaranna Benedikts Bogasonar og Karls Axelssonar. Ég fjarlægði færsluna stuttu síðar enda áttu þau atvik sem ég lýsti í færslunni sér aldrei stað og því voru umræddar ásakanir með öllu tilhæfulausar.

Ég bið hér með Benedikt Bogason og Karl Axelsson afsökunar á hinum tilhæfulausu ásökunum. Ég vil jafnframt biðja þá sem deildu færslunni með hinum tilhæfulausu ásökunum að deila jafnframt þessari afsökunarbeiðni.“

Hvorki náðist í Magnús Jónsson né Þorstein Vilhelmsson við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Grunaður ofbeldismaður kominn aftur heim til Íslands

Dómstóll í Austin í Texas mun taka fyrir mál Íslendingsins sem handtekinn var í síðustu viku, fyrir ofbeldi gegn unnustu sinni, á næstu vikum. Hinn grunaði er kominn til Íslands eins og fórnarlambið.

Slitum Atorku Group formlega lokið

Atorku Group hf. var formlega slitið þann 9. desember síðastliðinn og söluandvirði síðustu eigna eignarhaldsfélagsins greitt út til hluthafa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×