Viðskipti innlent

Vagninn fær nýja eigendur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vagninn á Flateyri.
Vagninn á Flateyri. Wikimapia
Þrenn pör hafa fest kaup á Vagninum á Flateyri. Um er að ræða fólk sem dvelur á Flateyri hluta úr ári. Bæjarins besta greinir frá.

Nýju eigendurnir eru Sindri Páll Kjartansson og Arnþrúður Dögg Sigurðardóttir, Hálfdán Pedersen og Sara Jónsdóttir ásamt Geir Magnússyni og Ragnheiði Ólafsdóttir.

Margt verður um að vera á Vagninum um páskana þar sem KK banda mun meðal annars troða upp á afmælistónleikum á föstudaginn langa. Svo opnar Vagninn aftur í maí en veitingasala verður svo í vagninum í allt sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×