Viðskipti erlent

Tölvugæludýrið snýr aftur

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
Tölvugæludýr voru hluti af staðalbúnaði ungu kynslóðarinnar á tíunda áratugnum.
Tölvugæludýr voru hluti af staðalbúnaði ungu kynslóðarinnar á tíunda áratugnum. vísir/getty
Tölvugæludýrið, sem var vinsælt leikfang á tíunda áratugnum, hefur nú snúið aftur á markað eftir smávægilegar endurbætur. Independent greinir frá.

Leikfangið, sem heitir á frummálinu Tamagotchi, sló í gegn hjá börnum og unglingum fyrir um tuttugu árum síðan en þau komu fyrst á markað í Japan árið 1996.

Tölvugæludýrin eru framleidd í Japan og verða aðeins fáanleg þar, í það minnsta fyrst um sinn.

Gæludýrin hafa verið smækkuð örlítið og verða fáanleg í sex litum. Að öðru leyti eru þau keimlík upprunalegu tölvugæludýrunum og hafa haldið sporöskjulaga lögun sinni.

Markmiðið með tölvugæludýrum var að líkja eftir alvöru gæludýrum sem þurfti að hugsa um, þrífa eftir og mata. Ef eigandi tölvugæludýrsins vanrækti þarfir þess var hættan sú að gæludýrið myndi gefa upp öndina.

Áhugasamir geta pantað sér tölvugæludýr frá Japan á Amazon en stykkið kostar rúmlega 2000 krónur.  


Tengdar fréttir

Endurkoma Nokia

Nýverið var tilkynnt að Nokia hygðist hefja innreið á farsímamarkað á ný, en félagið HDM Global ætlar að setja hinn forna 3310 síma aftur á markað. Nokia-merkið hefur undanfarin ár gengið gegnum mikinn öldudal eftir að hafa verið leiðandi á farsímamarkaði um langt skeið upp úr aldamótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×