Golf

Þrefaldur skolli á átjándu holunni og Ólafía langt frá niðurskurðinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/Let/Tristan Jones
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði á þremur höggum yfir pari á öðrum degi Lotte/Hershey golf mótsins á Honolulu og endaði daginn í 129. sæti. Það var ekki nóg til að ná niðurskurðinum og hefur hún því lokið keppni á Hawaii.

Ólafía Þórunn lék þessar 36 holur á 151 höggum eða á sjö höggum yfir pari. Hún bætti sig um eitt högg frá því á fyrsta hringnum en það var langt frá því að vera nóg því Ólafía Þórunn var mörgum höggum frá því að ná niðurskurðinum og hefur því lokið keppni á  Hawaii.

Það voru á endanum aðeins fjórtán kylfingar sem komu inn á verra skori en Ólafía Þórunn sem hefur átt erfiðara uppdráttar á síðustu mótum en á fyrstu mótunum þar sem hún spilaði frábærlega.

Ólafía Þórunn fékk fugl á fyrstu holu og svo annan á fimmtu holu. Þriðji fugl dagsins kom síðan á sautjándu holurnni. Ólafía var þá kominn niður á par á öðrum hringnum en fjögur högg yfir par samanlagt.

Átjánda holan reyndist henni hinsvegar mjög erfið. Ólafía spila þessa par fjögur holu á sjö höggum og fékk því þrefaldan skolla. Það þýddi að hún kom inn á sjö höggum yfir pari.

Þetta var fimmta mótið hjá Ólafíu á LPGA-mótaröðinni og þriðja mótið í röð sem hún nær ekki niðurskurðinum. Þetta er samt slakasta frammistaða hennar til þessa út frá sæti og skori.

Skorkort Ólafíu á mótinu.Mynd/lpga.com

Tengdar fréttir

Vonir um íslenska páskafugla

Páskahelgin er söguleg fyrir því í fyrsta sinn á Ísland keppendur á bandarísku og evrópsku mótaröðinni á sama tíma. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppir á LPGA á Hawaii og Valdís Þóra Jónsdóttir á LET í Marokkó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×