Viðskipti erlent

Microsoft losar sig við lykilorð

Sæunn Gísladóttir skrifar
Hægt verður að nota síma til innskráningar inn á Microsoft reikninga.
Hægt verður að nota síma til innskráningar inn á Microsoft reikninga. Vísir/Getty
Forsvarsmenn tæknifyrirtækisins Microsoft hafa tilkynnt að þeir munu bjóða viðskiptavinum sínum annan valkost til að nota Microsoft reikninga sína en lykilorð.

Business Insider greinir frá því að Microsoft mun bjóða upp á snjallforrit á snjallsímum. Í stað þess að muna löng og flókin lykilorð geta notendur notað Microsoft Authenticator forritið og þurfa þá einungis að muna notendanafn sitt og staðfesta svo með símanum sínum þegar þeir vilja nota reikninga sína.

Alex Simons, framkvæmdastjóri hjá Microsoft, segir í bloggfærslu að með þessu sé verið að færa öryggið frá minni fólks til tækja þeirra.

Undanfarið hefur verið greint frá því að lykilorð séu mjög viðkvæm gagnvart árás tölvuþrjóta enda sé almenningur mjög lélegur í því að finna upp á góðu lykilorði, eða þá notar oft þau sömu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×