Golf

Fyrsta risamót ársins á LPGA-mótaröðinni í beinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Forystusauðurinn Lexi Thompson er á átta höggum undir pari.
Forystusauðurinn Lexi Thompson er á átta höggum undir pari. vísir/getty
Lexi Thompson frá Bandaríkjunum er með forystu eftir fyrstu tvo hringina á ANA Inspiration, fyrsta risamóti ársins á LPGA-mótaröðinni í golfi.

Thompson lék fyrstu tvo hringina á samtals átta höggum undir pari.

Þar á eftir koma Sung Hyun Park og So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu, Suzann Pettersen frá Noregi og Michelle Wie frá Bandaríkjunum, allar á sjö höggum undir pari.

Útsending frá þriðja degi mótsins hefst klukkan 21:00 á Stöð 2 Sport 4 sem er einnig opin fyrir áskrifendur Golfstöðvarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×