Brúða með einhverfu bætist í hópinn í Sesame Street Atli Ísleifsson skrifar 20. mars 2017 10:25 Elmo og Julia.
Ný brúða mun bætast í hópinn í bandaríska barnaþættinum Sesame Street í næsta mánuði. Brúðan ber nafnið Julia sem er ung stelpa með appelsínugult hár og með einhverfu. Brúðan hefur þegar birst í bókum með brúðum þáttanna og á netinu, en aðstandendur þáttanna vilja nú auka veg hennar. Í frétt BBC kemur fram að börnum sem greinast með einhverfu hafi fjölgað mikið í Bandaríkjum á síðustu árum, þar sem eitt af hverjum 68 hafi greinst á einhverfurofinu. Þó hafi oft reynst erfitt að útskýra einhverfu fyrir börnum og er Juliu ætlað að hjálpa til við það. Handritshöfundurinn Christine Ferraro segir í samtali við 60 Minutes að erfitt hafi reynst að nálgast viðgangsefnið. „Þetta er snúið þar sem einhverfa er ekki eitt ákveðið, þar sem hún er ólík fyrir hvern þann sem er með einhverfu.“ Í fyrsta þættinum mun Julia birtast áhorfendum með nokkur einkenni sem algeng eru hjá fólki með einhverfu. Þegar Big Bird hittir Juliu hunsar hún hann og spyr Big Bird þá hvort Juliu sé ef til vill illa við sig. Útskýra aðrar brúður þá að Julia geri bara hlutina aðeins öðruvísi. Í 60 Minutes er einnig rætt við Stacey Gordon sem stýrir Juliu, en Gordon er einmitt móðir einhverfs drengs. Hún segist mjög ánægð með að Julia hafi bæst í brúðuhópinn og vonast til að hægt verði að auka þekkingu og skilning barna og fleiri á einhverfu. Þættirnir Sesame Street eru sýndir á HBO og PBS og hafa verið í sýningu í nærri hálfa öld.
Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Fleiri fréttir Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Sjá meira