Sport

Vonandi titilbardagi hjá Gunnari í lok ársins

Tómas Þór Þórðarson í London skrifar
Gunnar Nelson og Alan Jouban mættust  í gær á fjölmiðladegi í tengslum við bardagann þeirra og störðu í augun hvor á öðrum; Gunnar eins og hann  væri nývaknaður en Jouban eins og tískumódelið sem hann er.  Hinn 35 ára gamli Alan Jouban er búinn að vinna þrjá bardaga í röð í UFC.
Gunnar Nelson og Alan Jouban mættust í gær á fjölmiðladegi í tengslum við bardagann þeirra og störðu í augun hvor á öðrum; Gunnar eins og hann væri nývaknaður en Jouban eins og tískumódelið sem hann er. Hinn 35 ára gamli Alan Jouban er búinn að vinna þrjá bardaga í röð í UFC. Vísir/Getty
Írinn John Kavanagh hefur þjálfað Gunnar Nelson í að verða áratug eða síðan hann sá Gunnar ungan sýna listir sínar í í brasilísku jiu-jitsu í gamla Mjölnishúsinu í slippnum. Kavanagh hefur alltaf haft óbilandi trú á Gunnari og segir það ekki skipta máli að Gunnar hefur ekki barist í tíu mánuði.

Gunnar mætir Bandaríkjamanninum Alan Jouban í O2-höllinni í London á UFC-bardagakvöldi á laugardaginn.

„Gunnar hefur verið á fullu í bardagaíþróttum síðan hann var lítill strákur. Þegar hann er ekki að berjast er hann samt alltaf á fullu að æfa þannig að þótt hann hafi ekki verið að keppa hefur það engin áhrif á hann,“ segir Kavanagh sem kom til London á miðvikudaginn og tók þá æfingu með Gunnari.

Líktu eftir Jouban

Hinn 34 ára gamli Alan Jouban er búinn að vinna þrjá bardaga í röð og getur með sigri á Gunnari komist inn á styrkleikalistann í veltivigtinni. Gunnar er talinn sigurstranglegri og á að vera með fleiri vopn í vopnabúrinu en Jouban má ekki vanmeta og það gerir Írinn ekki.

„Jouban er góður standandi en hann er „southpaw“ sem þýðir að hann stendur öfugt á miðað við aðra. Hann er búinn að vinna þrjá í röð og kemur fullur sjálfstrausts inn í þennan bardaga. Hann er góður að slá frá sér þegar hann stendur og er bara UFC-bardagamaður. Það kemst enginn inn í UFC án þess að vera góður í öllu þannig að hann hefur svo sannarlega sín vopn,“ segir Kavanagh.

Sjá einnig:„Hann mun reyna að djöflast á kallinum“

Írinn var nýmættur til London þegar Fréttablaðið hitti á hann á hóteli í fjármálahverfinu. Hann fór strax að skipuleggja æfingu fyrir sig og Gunna og það sem gera skal í vikunni. Hann stýrði hluta undirbúnings Gunnars í Dyflinni en Gunnar er sérstaklega að undirbúa sig fyrir spörkin hans Alans Jouban. Eða hvað?

„Bæði og,“ segir Kavanagh. „Gunni og eins liðsfélagi hans, Conor McGregor, eru vanir því að fá alltaf nýjan mótherja með skömmum fyrirvara. Maður þarf auðvitað að skoða mótherjann vel en það má ekki gleyma sér í því að undirbúa sig sérstaklega fyrir hann. Það getur allt breyst með skömmum fyrirvara en nú stefnir allt í að af þessum bardaga verði.“

Gunnar fékk samt stráka til að líkja eftir Jouban í Dyflinni: „Það voru tveir ansi flottir og sterkir strákar sem Gunni æfði á móti sem eru „southpaw“ á Írlandi. Þeir settu upp æfingu sem var eins og bardagi við Jouban fyrir Gunnar. Honum gekk vel á móti þeim og ég held að þessi stíll henti honum vel,“ segir Kavanagh.

Klárar Jouban í annarri

Kavanagh er alveg klár á því að Gunnar hafi betur á móti Jouban. Sannfærandi sigur gæti komið Gunna á stórt bardagakvöld innan skamms tíma og til þess horfir Írinn. Hann hefur áður lýst því yfir að Gunnar sé nógu góður til að verða heimsmeistari og hann sér fram á titilbardaga í lok árs ef allt gengur vel. Fyrst þarf samt að klára bardagann á laugardaginn.

Sjá einnig:Alan Jouban: Gunnar tók slæma ákvörðun á móti Maia

„Við megum ekki gleyma því hversu góður Jouban er. Hann hefur aldrei verið kláraður með heng­ingar­taki í 16 atvinnubardögum. Hann hefur sýnt að hann er góður í gólfinu en hann hefur vissulega aldrei barist við Gunna. Ég veit ekki af hverju en ég hallast að því að Gunnar klári hann með hengingu í annarri lotu,“ segir Kavanagh en að klára Jouban þannig yrði flott fyrir Gunnar.

„Að hengja mann sem hefur aldrei verið kláraður þannig er yfirlýsing til UFC. Þannig frammistaða ætti að koma Gunna á stórt bardagakvöld í sumar og ef það gengur vel sé ég fram á titilbardaga jafnvel í lok árs,“ segir John Kavanagh.

MMA

Tengdar fréttir

Dana: Það verður af þessum bardaga

Bardagi Floyd Mayweather og Conor MGregor verður líklegri með hverjum deginum og nú hefur forseti UFC, Dana White, sagt að hann telji að það verði af bardaganum.

Mest stressaður þegar Gunni berst

Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis og góðvinur Gunnars Nelson, stendur ávallt við búrið þegar Gunnar berst. Hann segir Gunnar vera bestu auglýsingu sem í boði er fyrir Mjölni sem hefur farið úr litlum sal í höll á tæpum áratug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×