Viðskipti innlent

Skotsilfur Markaðarins: Lokun Topshop og vendingar hjá GAMMA

RITSTJÓRN MARKAÐARINS skrifar
Leitað var til Kristínar Pétursdóttur, stjórnarformanns verðbréfafyrirtækisins Virðingar, og hún beðin um að bjóða sig fram í stjórn Icelandair Group. Af því varð ekki eins og mátti sjá í tilkynningu flugfélagsins til Kauphallar Íslands síðastliðið sunnudagskvöld þar sem kom fram að sex frambjóðendur verða í framboði á aðalfundi félagsins á föstudag.

Fastlega er búist við að þeir Georg Lúðvíksson, stofnandi Meniga, og Ómar Benediktsson, forstjóri Farice, verði kjörnir í stjórn Icelandair og taki þar með sæti Sigurðar Helgasonar, fráfarandi stjórnarformanns, og Magnúsar Magnússonar, en þeir ákváðu að sækjast ekki eftir endurkjöri.

Finnur Árnason, forstjóri Haga.
Kom á óvart

Það kom mörgum á óvart þegar Finnur Árnason, forstjóri Haga, staðfesti við Vísi að verslunarrisinn hefði ákveðið að loka Topshop á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum Markaðarins kom ákvörðunin stjórnendum og eigendum Kringlunnar og Smáralindar í opna skjöldu.

Fréttu þeir af ákvörðun Haga daginn áður en fréttin birtist eða um svipað leyti og fyrirtækið tilkynnti starfsfólki Topshop um lokunina. Finnur sagði í samtali við Vísi að stutt væri eftir af leigusamningum um verslunarrými tískubúðarinnar og því hefði verið tekin ákvörðun um að framlengja ekki. Heimildir Markaðarins herma að ekki sé búið að ráðstafa plássunum tveimur.

Vendingar hjá GAMMA

Tilkynnt var um það í vikunni að Gísli Hauksson, annar af stofnendum fjármálafyrirtækisins GAMMA, hefði ákveðið að láta af starfi forstjóra auk þess sem gerðar yrðu aðrar breytingar á skipuriti félagsins. Gísli mun taka við sem stjórnarformaður GAMMA, en hann á um 31 prósents hlut í félaginu, og Valdimar Ármann verður eftirmaður Gísla.

Samhliða þessum breytingum var greint frá því að Lýður Þorgeirsson, sem á 4 prósent í GAMMA og hefur verið framkvæmdastjóri sérhæfðra fjárfestinga, hefði látið af störfum. Við starfi Lýðs tekur Ingvi Hrafn Óskarsson.

Skotsilfrið er óvægin innsýn inn í bakherbergi viðskipta og atvinnulífs á landinu. Pistillinn birtist í Markaðnum í Fréttablaðinu á miðvikudögum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×