Golf

Aðeins þrjár spiluðu betur en Ólafía í nótt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía horfir á eftir höggi á mótinu í Ástralíu.
Ólafía horfir á eftir höggi á mótinu í Ástralíu. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði sinn besta hring á ISPS Handa-mótinu í Ástralíu er hún kom í hús á tveimur höggum undir pari laust eftir miðnætti í nótt. Fylgst var með hringnum hennar í beinni textalýsingu á Vísi.

Sjá einnig: Ólafía Þórunn kom í hús á tveimur höggum undir pari

Hún var með fyrstu kylfingunum til að klára þá en þegar uppi var staðið spiluðu aðeins þrír kylfingar betur en hún af þeim 75 sem komust í gegnum niðurskurðinn.

Ólafía Þórunn var í 35. sæti þegar hún kom í hús en er nú í 23. sæti ásamt sex öðrum kylfingum fyrir fjórða og síðasta keppnisdaginn. Ólafía er aðeins þremur höggum frá kylfingum sem eru í tíunda sæti.

Ólafía spilaði mjög stöðugt golf í nótt. Hún fékk einn fugl og átta pör á fyrri níu og tvo fugla, sex pör og einn skolla á seinni níu.



Su Oh frá Ástralíu, Haru Nomura frá Japan og Ha Na Jang frá Suður-Kóreu voru þær einu sem spiluðu betur en Ólafía Þórunn í nótt. Þær eru allar á meðal tíu efstu á mótinu eftir þrjá keppnishringi.

Lizette Salas frá Bandaríkjunum er í forystu á tíu höggum undir pari en þrír eru svo næstir á átta höggum undir pari. Einn Evrópubúi er á meðal tíu efstu en það er hin danska Hanna Madsen.

Ólafía Þórunn á rástíma klukkan 00.50 í nótt en bein útsending frá mótinu hefst á Golfstöðinni klukkan 02.00.

Fáðu þér áskrift að Golfstöðinni á 365.is.


Tengdar fréttir

Ólafía söng og dansaði eftir hringinn | Myndband

Gleðin var svo sannarlega við völd hjá okkar konu, Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, eftir að hún komst í gegnum niðurskurðinn á ISPS Handa-mótinu á LPGA-mótaröðinni í morgun.

Ólafía Þórunn bjargaði sér á fuglasöng í lokin

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur nú náð niðurskurðinum á tveimur fyrstu mótum sínum á bandarísku mótaröðinni, LPGA, en GR-ingurinn öflugi átti síðasta fugla-orðið á hringum sínum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×