Ofbýður framferði tryggingafélaganna ingvar haraldsson skrifar 3. mars 2016 10:51 Jóhanna Sigurðardóttir og Árni Snævarr vilja að gripið verði til aðgerða vegna arðgreiðslna tryggingarfélaganna. vísir „
Bankarnir og tryggingafélögin misbjóða algjörlega fólki og ættu að skammast sín,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra í færslu á Facebook í kjölfar umfjöllunar Fréttablaðsins um áform tryggingafélaganna um arðgreiðslur. Samkvæmt tillögum sem liggja fyrir aðalfundi tryggingarfélaganna er lagt til að allt að 13 milljarðar króna verði greiddir til eigenda þeirra, með arðgreiðslum og endurkaupum eigin hlutabréfa. „Bankar blóðmjólka heimilin með okurvöxtum og þóknanagjöldum og greiða síðan himinháa bónusa og ofurkjör til stjórnenda af þessum ránsfeng og tugi milljarða í arð til hluthafa. Tryggingafélög fylgja nú í kjölfarið og greiða háar arðgreiðslur til hluthafa á sama tíma og þau krefjast hærri iðgjalda eins og af skyldutryggingu sem fólk hefur ekkert val um hvort það greiðir,” segir Jóhanna.Sjá einnig: Bankarnir hagnast um 106,8 milljarðaHún vill að Samkeppniseftirlitið grípi til aðgerða. „Gera þarf tafarlausa úttekt á samkeppnisháttum banka og tryggingafélaga og hvort einhverskonar dulbúið samráð sé á milli aðila í þessum greinum og skoða hvort hægt sé að setja hömlur á óþolandi okur þeirra á almenning.“Herdís Dröfn Fjeldsted og aðrir stjórnarmenn í VÍS leggja til að fimm milljarðar verði greiddir í arð vegna reksturs síðasta árs. Félagið hagnaðist um tvo milljarða króna á árinu. Arðeiðslan kemur meðal annars til vegna nýrrar reikningsskilaraðferðar sem hækkar eigið fé félagsins en lækkar vátryggingarskuld.vísir/antonÆtlar að segja upp viðskiptum við TMÞá hefur Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, sent bréf til TM þar sem hann segist ætla að hætta í viðskiptum við fyrirtækið verði tillaga að arðgreiðslu og endurkaupum hlutabréfa samþykkt á aðalfundi félagsins. Árni hvetur aðra neytendur til að gera slíkt hið sama í færslu á Facebook.Sjá einnig: Ný reikningsskil skapa milljarða í arð fyrir tryggingafélögin„Ég óska hér með eftir upplýsingum um það hvað ég þarf að gera til að segja upp viðskiptum mínum við fyrirtækið, segir Árni í bréfinu til TM. „Ástæðan fyrir því að ég undirbý að hætta viðskiptum við fyrirtækið eru fréttir um útgreiðslu arðs sem sem er algjörlega óréttlætanlegur. Það er ekkert nýtt að iðgöld á Íslandi séu há, enda er mörgum i fersku minni hvernig sjóðir Tryggingafélaga voru misnotaðir í aðdraganda hrunsins. Nú bætist við að gróði tryggingafélaga byggist á breytingum á lagaumhverfi vegna tilskipana ESB,” segir Árni. Þá vitnar hann í orð Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðareigenda, sem sagði í Fréttablaðinu að miðað við framsetningu tryggingafélaganna á nýrri reikningsskilaaðferð hafi tjón verið ofáætlað. Því ætti upphæðin að renna til viðskiptavina tryggingafélaganna en ekki vera greidd út sem arður. „Í eðlilegu viðskiptaumhverfi myndi svona ekki ganga.“sagði Runólfur. Árni segist ætla að bíða fram yfir aðalfundi tryggingarfélaganna. „Ef svo ólíklega vildi til að fyrirtækið/n sjái að sér en tel sjálfsagt að upplýsa ykkur um að aðgerðir eru í uppsiglingu til að knýja tryggingafyrirtæki til að koma til móts við viðskiptavini sína í stað þess að moka fé út úr fyrirtækjunum,“ segir Árni. „Það er kominn tími til að íslenskir neytendur hætti að láta bjóða sér framkomu af þessu tagi. Það skal þó viðurkennt að framkoma ykkar er skárri en VÍS sem hækkaði iðgjöld vegna meintrar slæmrar afkomu, en greiddi síðan út milljarða í arðgreiðslur,“ bætir Árni við. Þónokkrir virðast hafa svarað kallinu og segjast, á Facebook síðu, Árna ætla að senda sambærilegt bréf. Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforingi á Akranesi, spyr út í þátt lífeyrissjóðanna í arðgreiðslum VÍS.Vilhjálmur spyr út í þátt lífeyrissjóðannaÞá segist Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforingi á Akranesi, á Facebook, hafa fengið sömu tilkynningu og aðrir viðskiptavinir VÍS í lok nóvember þar sem tilkynnt var að iðgjöld yrði hækkuð vegna slæmrar afkomu. Skömmu síðar hafi stjórn VÍS svo tilkynnt um að hún hafi ákveðið að þiggja 75% hækkun reglulegra launa sem samþykkt hafi verið á síðasta aðalfundi. Stjórnin bar því við að í staðinn hefði viðbótargreiðslum verið hætt og launin væru í samræmi við sambærileg félögum á markaði. „Núna hefur stjórnin bætt um betur og ákveðið að 5 milljarðar verði greiddir í arð fyrir árið 2015 og þetta er allt að gerast á sama tíma og iðgjöld á viðskiptavini eru hækkuð allverulega,“ segir hann og spyr út í þátt lífeyrissjóðanna, stærstu hluthafa í VÍS. „Getur verið að lífeyrissjóðirnir "okkar" séu að knýja á um alvöru arðgreiðslur en þeir eiga 36% í VÍS. Er ekki eitthvað bogið við þetta?“Bréf Árna Snævars má lesa í heild sinni hér að neðan:Kæra Tryggingamiðstöð.Ég óska hér með eftir upplýsingum um það hvað ég þarf að gera til að segja upp viðskiptum mínum við fyrirtækið.Ástæðan fyrir því að ég undirbý að hætta viðskiptum við fyrirtækið eru fréttir um útgreiðslu arðs sem sem er algjörlega óréttlætanlegur. Það er ekkert nýtt að iðgöld á Íslandi séu há, enda er mörgum i fersku minni hvernig sjóðir Tryggingafélaga voru misnotaðir í aðdraganda hrunsins. Nú bætist við að gróði tryggingafélaga byggist á breytingum á lagaumhverfi vegna tilskipana ESB. Í Fréttablaðinu segir: „Runólfur Ólafsson, hjá FÍB, segir að miðað við framsetningu tryggingafélaganna á hinni nýju reikningsskilaaðferð hafi tjón verið ofáætlað. Því ætti upphæðin að renna til viðskiptavina tryggingafélaganna en ekki vera greidd út sem arður. „Í eðlilegu viðskiptaumhverfi myndi svona ekki ganga.“Að sjálfsögðu bíð ég fram yfir aðalfundi, ef svo ólíklega vildi til að fyrirtækið/n sjái að sér en tel sjálfsagt að upplýsa ykkur um að aðgerðir eru í uppsiglingu til að knýja tryggingafyrirtæki til að koma til móts við viðskiptavini sína í stað þess að moka fé út úr fyrirtækjunum. Það er kominn tími til að íslenskir neytendur hætti að láta bjóða sér framkomu af þessu tagi. Það skal þó viðurkennt að framkoma ykkar er skárri en VÍS sem hækkaði iðgjöld vegna meintrar slæmrar afkomu, en greiddi síðan út milljarða í arðgreiðslur,b.kv. Árni Snævarr
Tengdar fréttir Stjórn VÍS vill greiða eigendum 5 milljarða í arð VÍS hagnaðist um 2,1 milljarð króna á síðasta ári miðað við 1,2 milljarða hagnað árið 2014. 24. febrúar 2016 16:05 Mest lesið Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Einar hættir með Grillbúðina Viðskipti innlent Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Viðskipti innlent Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Viðskipti innlent Snýr aftur til Snjallgagna Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá OK Viðskipti innlent Hætta skerðingum til stórnotenda Viðskipti innlent Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Sjá meira
Stjórn VÍS vill greiða eigendum 5 milljarða í arð VÍS hagnaðist um 2,1 milljarð króna á síðasta ári miðað við 1,2 milljarða hagnað árið 2014. 24. febrúar 2016 16:05