Viðskipti erlent

Google hefur keypt yfir hundrað og áttatíu fyrirtæki

Sæunn Gísladóttir skrifar
Larry Page, framkvæmdastjóri Alpha­bet, hefur yfir mörgu að gleðjast. Hlutabréfaverð félagsins er 18 sinnum hærra en árið 2004.
Larry Page, framkvæmdastjóri Alpha­bet, hefur yfir mörgu að gleðjast. Hlutabréfaverð félagsins er 18 sinnum hærra en árið 2004. Vísir/Getty
Alphabet, móðurfélag Google, er orðið verðmætasta skráða hlutafélag heims, og er verðmætara en Apple í fyrsta sinn í sex ár. Svo virðist sem spjaldtölvu- og snjallsímamarkaðirnir séu að mettast á meðan auglýsingamarkaður farsíma er að blómstra.

Á mánudagskvöld tilkynntu forsvarsmenn Alphabet um góða afkomu á fjórða ársfjórðungi 2015. Í kjölfarið hækkuðu hlutabréf í félaginu allverulega og hefur fyrirtækið því tekið fram úr Apple sem verðmætasta skráða fyrirtæki í heiminum.

Fyrirtækið er nú metið á 558 milljarða bandaríkjadala, nærri 73 þúsund milljarða íslenskra króna, en Apple er metið á 535 milljarða bandaríkjadala eða rétt tæplega 70 þúsund milljarða íslenskra króna.

Google hefur ekki verið verðmætara en Apple í sex ár, eða síðan í febrúar 2010. En þá voru fyrirtækin einungis metin á tæpa 200 milljarða dollara, jafnvirði 26 þúsund milljarða íslenskra króna, og hafa því orðið mun verðmætari síðan þá. Það var áður en iPad kom út og iPhone 4 sem átti eftir að staðfesta stöðu Apple sem vinsælasta snjallsímaframleiðandans.

Margt bendir til þess að spjaldtölvu- og snjallsímamarkaðirnir séu að mettast sem hefur gríðarleg áhrif á stöðu Apple. Google virðist þó vera að blómstra vegna vaxandi hlutdeildar sinnar á auglýsingamarkaði farsíma. Samkvæmt spám eMarketer mun Google eiga 32 prósenta hlutdeild af markaðnum á árinu 2016, á móti 20 prósenta hlutdeild Facebook.

Lykillinn að velgengni Alphabet virðist vera að hafa mörg járn í eldinum. Google hefur keypt yfir 180 fyrirtæki og á meðal annars Motor­ola og YouTube. Auk þess þróar fyrir­tækið Android-stýrikerfið, Google Maps og er að þróa sjálfkeyrandi bíla og vélmenni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×