Þingmenn líti í eigin barm Una Sighvatsdóttir skrifar 18. janúar 2016 19:00
Alþingi kemur aftur saman á morgun eftir fjögurra vikna hlé, en mikil átök voru á þinginu í desember. Þingmönnum gekk illa að ná saman um hvaða mál ætti að afgreiða og ríkisstjórnin var gagnrýn fyrir dræm afköst, enda bíður fjöldi mála enn fyrstu umræðu nú við upphaf vetrarþings. Aðeins brot af þeim þingmálum sem boðuð voru í haust hafa verið afgreidd. Þannig bíða 76 lagafrumvörp umræðu, 29 eru í nefnd en 22 frumvörp hafa verið samþykkt á yfirstandandi þingi. Hlutföllin eru enn skakkari þegar kemur að þingsályktunartillögum því því 92 tillögur bíða umræðu, 11 eru í nefnd en aðeins 9 tillögur hafa verið samþykktar á yfirstandandi þingi.Húsnæðismálin ber hæst Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis bendir þó á að þarna á meðal séu fjölmörg mál frá einstökum þingmönnum sem ekki er búist við að komist á dagskrá. Í forgangi nú verði að koma sem flestum stjórnarfrumvörpum til fyrstu umræðu svo vinna geti hafist í nefndum. Þá séu nokkur stór mál komin vel á veg í nefndum. „Kannski það sem ber einna hæst hygg ég sé nú húsnæðismálin sem velferðarnefnd er að fara yfir og skoða. Mér finnst ekki ólíklegt að vinna nefndarinnar teygist eitthvað fram á næsta mánuð.“ Einar segir mikilvægt að þingmál séu kláruð tímanlega og strandi hvorki hjá ríksistjórn né í nefndum, svo eðlileg umræða geti farið fram á öllu þíngtímabilinu en hlaupi ekki í hnút á lokametrunum. „Ég hvatti til þess í lok þingsins rétt fyrir jól að við settumst niður og reyndum að gera okkur grein fyrir því hvernig við getum rætt fjárlögin með öðrum og betri brag en tóks til fyrir jólin."Pólitísk samstaða um að setja siðareglur Hann segist vetrarþing leggjast ágætlega í sig og vonast til að sleginn verði annar og betri tónn en sá sem ómaði í þingsal fyrir jól. „Ég ætla satt að segja að vona það og vona að við höfum lært ýmislegt af þessu. Við þurfum að líta í eigin barm, allir þingmenn, og sjá hvað við getum gert betur í þessum efnum. Ég held að innst inni viljum við auðvitað að góður bragur sé á þessu." Áður en þingfundur hefst á morgun mun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd eiga fund þar sem aðalumfjöllunarefnið verður þingsályktunartillaga um siðareglur fyrir Alþingismenn. Einar er sjálfur flutningsmaður þeirrar tillögu og telur mikilvægt að hún verði afgreidd. „Vissulega geri ég ráð fyrir að það séu einhverjir stakir þingmenn sem hafi eitthvað við það að athuga, skárra væri það nú. En það er auðvitað þannig að það er kveðið á um það í lögum um þingsköp Alþingis að þingið skuli setja sér siðareglur. Það hefur nú tekið býsna langan tíma í undirbúningnum, en sem betur fer er breið pólitísk samstaða um það."
Tengdar fréttir Pirringurinn meðal annars vegna óvenju langra umræðna Nokkur ófriður hefur ríkt á Alþingi í annarri umræðu fjárlaga næsta árs, sem nú hefur tekið um sextíu klukkustundir. 15. desember 2015 20:26 Þingstörfin í hnút og starfsáætlun Alþingis farin úr skorðum Ekki sér fyrir endann á þingstörfum. Þingi átti að ljúka síðastliðinn föstudag samkvæmt starfsáætlun þingsins og í gær voru fjárlög enn til umræðu. 15. desember 2015 07:00 Pirringur og hnútukast á Alþingi Enn á eftir að afgreiða fjárlög, fjáraukalög, frumvarp um opinber fjármál, bandorminn, frumvarp um RÚV og Þróunarsamvinnustofnun. 15. desember 2015 20:15 Fjörutíu prósent þingumræðunnar hefur verið um fjárlögin Búið er að ræða um þau í um 90 klukkustundir. 16. desember 2015 14:34 Yfir tvö hundruð mál bíða óafgreidd í þinginu Þingið kemur saman eftir jólafrí á morgun og þar bíður þingmönnum haugur af málum. 18. janúar 2016 11:16 Stjórnarandstaðan situr hjá við atkvæðagreiðsluna Leiðtogar stjórnarandstöðunnar ætla að sitja hjá við atkvæðagreiðslu í flestum málum. 16. desember 2015 18:29 Ólína segir þinginu stjórnað af nátttröllum Ekki sér fyrir endan á taugastríði stjórnar og stjórnarandstöðu um störf Alþingis og lok annarrar umræðu um fjárlög næsta árs. 15. desember 2015 13:17 Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira
Pirringurinn meðal annars vegna óvenju langra umræðna Nokkur ófriður hefur ríkt á Alþingi í annarri umræðu fjárlaga næsta árs, sem nú hefur tekið um sextíu klukkustundir. 15. desember 2015 20:26
Þingstörfin í hnút og starfsáætlun Alþingis farin úr skorðum Ekki sér fyrir endann á þingstörfum. Þingi átti að ljúka síðastliðinn föstudag samkvæmt starfsáætlun þingsins og í gær voru fjárlög enn til umræðu. 15. desember 2015 07:00
Pirringur og hnútukast á Alþingi Enn á eftir að afgreiða fjárlög, fjáraukalög, frumvarp um opinber fjármál, bandorminn, frumvarp um RÚV og Þróunarsamvinnustofnun. 15. desember 2015 20:15
Fjörutíu prósent þingumræðunnar hefur verið um fjárlögin Búið er að ræða um þau í um 90 klukkustundir. 16. desember 2015 14:34
Yfir tvö hundruð mál bíða óafgreidd í þinginu Þingið kemur saman eftir jólafrí á morgun og þar bíður þingmönnum haugur af málum. 18. janúar 2016 11:16
Stjórnarandstaðan situr hjá við atkvæðagreiðsluna Leiðtogar stjórnarandstöðunnar ætla að sitja hjá við atkvæðagreiðslu í flestum málum. 16. desember 2015 18:29
Ólína segir þinginu stjórnað af nátttröllum Ekki sér fyrir endan á taugastríði stjórnar og stjórnarandstöðu um störf Alþingis og lok annarrar umræðu um fjárlög næsta árs. 15. desember 2015 13:17