Ekkert lát á kynþáttafordómum á netinu Snærós Sindradóttir skrifar 28. júlí 2015 07:00 Umræðan síðustu daga hefur meðal annars snúist um hvort hælisleitendur eigi að fara í læknisskoðun við komuna til landsins. Nordicphotos/afp „
Þessi afmennskun felur í sér að fólki finnst það geta sagt hvað sem er á kommentakerfinu,“ segir Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Fréttir síðastliðinna daga, af hælisleitanda sem grunaður er um að hafa smitað konur af HIV-veirunni og af sjö Albönum sem voru fluttir héðan með leiguflugi án fyrirvara, hafa vakið hörð viðbrögð á athugasemdakerfum vefmiðlanna. Skoðanirnar eru oftar en ekki litaðar af kynþáttahyggju og þau viðhorf viðruð að Ísland eigi ekki að taka við neinum hælisleitendum til landsins. „Varðandi hælisleitendur almennt þá er hælisleitandinn orðinn miðlægur í umræðunni sem einhvers konar ógn við þjóðríkið, ásamt múslimum og fólki frá Austur-Evrópu,“ segir Kristín. „Það sem er mikilvægt að leggja áherslu á er að hælisleitandi er pólitísk skilgreining sem segir akkúrat ekkert um þessa manneskju. Þeir eru smættaðir niður í það að vera hælisleitendur, ekki manneskjur með ólíka sögu og bakgrunn.“ Rannsóknir hafa sýnt hvernig aukin kynþáttahyggja kemur oft fram við efnahagsþrengingar. Kristín segir að hér á landi hafi reiði almennings við hrun fyrst og fremst beinst að bankamönnum og fólki úr viðskiptalífinu. „Þetta þýðir samt ekki að það séu ekki meiri fordómar nú en áður. Það eru margir með innflytjendabakgrunn sem upplifa og sjá að það eru auknir fordómar í þeirra garð eftir hrunið.“ Kristín segir að þótt kynþáttafordómar séu fyrst og fremst kóðaðir í byggingu samfélagsins virðist athugasemdakerfin vera sá staður þar sem fólk reyni ekki að fela skoðanir sínar á útlendingum.Anna Katarzyna WozniczkaUndir þetta tekur Anna Katarzyna Wozniczka, formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Hún segir að földu fordómarnir séu meiri í íslensku samfélagi. Fólk af erlendum uppruna fái síður vinnu og eigi í meiri erfiðleikum með að finna sér húsnæði. Hún tekur þó eftir aukinni neikvæðri umræðu á internetinu, sem hafi ekki verið til staðar þegar hún flutti hingað til lands. „Ég veit ekki hversu margir lesa þessar fréttir. Ég held að margir skoði þær ekki lengur af því það eru oft sömu fullyrðingarnar og maður verður fljótlega þreyttur á því,“ segir Anna og á þá við fréttir og athugasemdir um útlendingamál. Aðspurð hvort fólk af erlendum uppruna taki rasískum athugasemdum persónulega svarar Anna: „Já, sérstaklega þegar maður lendir í því sjálfur að verða fyrir sýnilegum fordómum. Fólk tekur það mjög persónulega.“Eiríkur BergmannEiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, segir að svo virðist sem viðhorf til innflytjenda verði ekki jákvæðari með bættari efnahag. Það geti tekið tíma fyrir viðhorfin að breytast, enda hafi kynþáttahyggjan ekki hellst yfir landann í einu vetfangi. „En svo veit maður ekkert hvort það muni breytast eða hvenær það muni breytast. Þessi viðhorf skjóta sínum rótum. Svo lifa þessar hugmyndir áfram.“ Eiríkur bendir á að annars staðar á Norðurlöndunum hafi þjóðernispopúlískir flokkar náð að skjóta almennilega rótum. „Dönsk stjórnmál snúast um þjóðerni núna. Það er öxullinn í dönskum stjórnmálum. Sögulega samhengið er of skelfilegt til að maður geti tekið sér það í munn, og vekur alltaf ugg,“ segir Eiríkur. „Ég er ekki að spá neinu slíku en manni finnst það alltaf hættulegt þegar þessar hugmyndir fara af stað.“ Eiríkur segir að þjóðernishyggja sé ekki einskorðuð við illa menntað fólk með lítið á milli handanna. Flokkar sem byggja á þjóðernishyggju hafi í forystu sinni fólk sem kemur vel fyrir og dregur að sér sams konar hópa fólks. „Að miklu leyti er þetta afsprengi mjög alvarlegrar krísu sósíaldemókratíunnar í Evrópu. Þetta eru flokkar sem eru stofnaðir í kringum stéttabaráttu gegn hinum ráðandi stéttum. Svo gerist það smám saman að í forystu fyrir þessa flokka fara að koma fágaðri, betur menntaðir leiðtogar sem hafa áhuga á fínni blæbrigðum stjórnmálanna; lýðræði, umhverfisvernd, femínisma og ýmsum málum en um leið missa þeir tengslin við þessa verkamannagrasrót þessara flokka.“ Í því umhverfi segir Eiríkur auðvelt fyrir þjóðernissinnaða flokka að ná miklu fylgi.
Tengdar fréttir HIV smit: Sá grunaði nígerískur hælisleitandi Maðurinn hefur dvalið hér á landi í meira en ár. 23. júlí 2015 11:56 Sendir úr landi án fyrirvara Sérstök flugvél var leigð af ríkislögreglustjóra til að flytja sjö hælisleitendur úr landi á miðvikudagskvöld. Á meðal þeirra var fjölskylda, foreldrar og barn. Stór hópur íslenskra lögreglumanna fylgdi hælisleitendunum út. 24. júlí 2015 07:00 Mest lesið Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent Fleiri fréttir Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sjá meira
HIV smit: Sá grunaði nígerískur hælisleitandi Maðurinn hefur dvalið hér á landi í meira en ár. 23. júlí 2015 11:56
Sendir úr landi án fyrirvara Sérstök flugvél var leigð af ríkislögreglustjóra til að flytja sjö hælisleitendur úr landi á miðvikudagskvöld. Á meðal þeirra var fjölskylda, foreldrar og barn. Stór hópur íslenskra lögreglumanna fylgdi hælisleitendunum út. 24. júlí 2015 07:00