Viðskipti innlent

Vélar Flugfélags Íslands fá nýtt útlit

Atli Ísleifsson skrifar
Starfsfólk valdi úr fjölmörgum tillögum varðandi nýtt útlit flugvélanna.
Starfsfólk valdi úr fjölmörgum tillögum varðandi nýtt útlit flugvélanna. Mynd/Flugfélag Íslands
Flugfloti Flugfélags Íslands munu fá nýtt útlit í byrjun næsta árs. Endurnýjun flotans mun jafnframt halda áfram og munu þrjár nýjar Bombardier Q400 vélar leysa af hólmi síðustu Fokker 50 flugvélar félagsins. Framleiðslu Fokker vélanna lauk fyrir 20 árum. 

Í tilkynningu frá félaginu segir að starfsfólk hafi valið úr fjölmörgum tillögum varðandi nýtt útlit flugvélanna og hafi niðurstaðan verið afgerandi.

„Nú um miðjan janúar fer fyrsta Bombardier Q400 flugvélin í málningu í Bretlandi en vélin er svo væntanleg til Íslands í febrúar 2016. Bombardier Q400 flugvélar Flugfélags Íslands eru hljóðlátari, sparneytnari og taka fleiri farþega en Fokker vélarnar. Alltaf er gert ráð fyrir að lágmarki 4 ferðum milli Reykjavíkur og Akureyrar, en suma daga vikunnar og á ákveðnum tímabilum ársins verður sætaframboð enn meira en nú er á flestum áfangastöðum. Þá verða að lágmarki 3 ferðir daglega milli Reykjavíkur og Egilsstaða. Á álagstímum verður þess jafnframt gætt að auka sætaframboð,“ segir í tilkynningunni.

Mynd/flugfélag íslands





Fleiri fréttir

Sjá meira


×