Enski boltinn

Sjáðu umdeilt viðtal við Mourinho

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mourinho sagði að Eden Hazard hafði skipt sjálfum sér af velli.
Mourinho sagði að Eden Hazard hafði skipt sjálfum sér af velli. Vísir/Getty
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagði að leikmenn hefðu svikið hann og hans vinnu er liðið tapaði fyrir Leicester, 2-1, í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Þar með skellti Leicester sér á topp deildarinnar á ný og er með 20 stiga forskot á Englandsmeistara Chelsea, sem er aðeins einu stigi frá fallsæti.

Sjá einnig: Leicester endurheimti toppsætið með sigri á meisturunum | Sjáðu mörkin

Sky Sports hefur nú birt viðtalið í heild sinni á vefsíðu sinni en í því fór Mourinho um víðan völl. Hann sagði meðal annars að bæði mörk Leicester væru óásættanleg og að leikmenn hefðu svikið hann með því að verjast þeim ekki betur.

Hann sagði að síðasta korterið hefði orðið að fimm mínútum vegna meiðsla auk þess sem að boltastrákarnir hefðu verið duglegir að láta boltann hverfa. Þá sagði hann að lykilmenn Chelsea væru langt frá sínu besta og að Eden Hazard hafi skipt sér sjálfum af velli vegna meiðsla - eftir að hafa skipt tvisvar um skoðun á tíu sekúndum.

Þetta athyglisverða viðtal má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×