Viðskipti innlent

Þótti Stím óþægilega mikið skuldsett félag strax í upphafi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson í Héraðsdómi Reykjavíkur. vísir/stefán
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Sögu Capital, þótti félagið Stím óþægilega mikið skuldsett, eða gírað eins og hann orðaði það á sínum tíma, en fjárfestingabankinn sem hann stýrði lánaði Stím einn milljarð króna til að kaupa hlutabréf í nóvember 2007. Þá eignaðist Saga Capital jafnframt 6,25 prósent eignarhlut í Stím en Glitnir var stærsti hluthafi félagsins og lánaði því jafnframt tæpa 20 milljarða til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group.

Þorvaldur er ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum Jóhannesar Baldurssonar sem var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis. Meint umboðssvik fólust í því að einn fagfjárfestasjóða Glitnis keypti skuldabréf af Saga Capital í ágúst 2008 en útgefandi bréfsins var Stím.

Upphaflega var skuldabréfið lánssamningur milli Sögu Capital og Stím vegna láns fjárfestingabankans til félagsins, en samningnum var breytt í skuldabréf skömmu eftir að hann var undirritaður í nóvember 2007.

Viðskiptalegar forsendur hafi verið fyrir sölu skuldabréfsins

Vill ákæruvaldið meina að bæði Þorvaldur og Jóhannes hafi mátt vita að staða Stím væri slæm í ágúst 2008 þegar fagfjárfestasjóður Glitnis keypti skuldabréfið en samkvæmt ákæru var eigið fé Stím neikvætt og eignir félagsins höfðu rýrnað verulega. Fjármunum fagfjárfestasjóðsins var því stofnað í verulega hættu með kaupunum á bréfinu að mati ákæruvaldsins.

Þorvaldur neitar sök í málinu og krefst sýknu. Fyrir dómi sagði hann að hann teldi að viðskiptalegar forsendur hefðu verið fyrir því að  fagfjárfestasjóðurinn keypti skuldabréfið.

Hann taldi að Glitnir væri í góðum málum rekstarlega séð enda höfðu fyrstu sex mánuðir ársins 2008 fært félaginu 40 milljarða. Að auki hafði bankinn allar upplýsingar um stöðu Stím á þessum tíma en fram kom við skýrslutökuna að sjálfum hafði Þorvaldi gengið illa að fá upplýsingar um skuldastöðu félagsins fyrri hluta árs 2008. 

Var einfaldlega að gæta hagsmuna Sögu Capital

Að mati Þorvaldar stýrði Glitnir Stím en framkvæmdastjóri félagsins kom hins vegar frá Saga Capital. Sagði Þorvaldur að það hafi verið nokkuð snúið:

Hvernig áttum við að vera í forsvari fyrir félag sem við vissum ekkert um? spurði hann meðal annars í dómsal í dag.

Í máli sínu lagði Þorvaldur mikla áherslu á það að hann hafi verið að gæta hagsmuna Sögu Capital eins og honum bar skylda til. Þess vegna hafi hann til að mynda þrýst mikið á að um að fá upplýsingar um skuldastöðu Stím og það hvernig skuldastýring félagsins gengi hjá Glitni.

Þá sagðist hann efast um að hann myndi breyta öðruvísi í dag enda hafi hann þarna verið í hagsmunagæslu fyrir banka sem hann var í forsvari fyrir. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×