Viðskipti erlent

Nýtt hneykslismál?: Samsung sakað um álíka svindl og Volkswagen

ingvar haraldsson skrifar
Sjónvörpin frá Samsung eru sögð eyða minni orku við prófanir en venjulega notkun.
Sjónvörpin frá Samsung eru sögð eyða minni orku við prófanir en venjulega notkun. vísir/getty
Vísbendingar eru um að sjónvörp frá suður-kóreska tæknirisanum Samsung eyði mun meiri orku við venjulega notkun en í opinberum prófunum. Þetta kemur fram í frétt The Guardian og vitna þeir til prófa ComplianTV fyrirtækisins á sjónvörpunum.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út að allar ásakanir um svindli í prófum verði rannsakaðar og hefur heitið því að herða reglurgerðir varðandi orkunotkun til að koma í veg fyrir öll undanbrögð.

Málið þykir svipa til hneykslismáls Volkswagen sem kom upp í síðustu viku. Bílaframleiðandinn hefur viðurkennt að hafa komið fyrir hugbúnaði í ellefu milljónir dísilbíla sem hafi þau áhrif að bílarnir mengi minna við prófanir en við hefðbundna notkun.

Samsung hafnar ásökununum. Fyrirtækið segir búnað sem dregur úr birtu á sjónvarpsskjáum og þar með orkunotkun ekki bara fara í gang við prófanir heldur margoft við hefðbundna notkun, t.d. þegar horft sé á hasarmyndir, kappleiki eða veðurfréttir.

Þá sögðu forsvarsmenn Samsung að samanburður við Volkswagen skandalinn ætti ekki við nein rök að styðjast.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×