Körfubolti

Níu af tólf voru með í síðustu leikjum á móti Serbum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson var ekki með gegn Serbíu síðast.
Hörður Axel Vilhjálmsson var ekki með gegn Serbíu síðast. vísir/valli
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta spilar í dag sinn þriðja leik á Evrópumótinu í Berlín en liðið mætir þá ósigruðu liði Serbíu.

Serbar hafa unnið Spán og Þýskalands í tveimur fyrstu leikjum sínum á sama tíma og íslenska liðið tapaði naumlega á móti Þjóðverjum og Ítölum.

Ísland mætti Serbíu tvisvar í undankeppni EM sumarið 2013 og tapaði í bæði skiptin, fyrst með 13 stigum í Laugardalshöllinni, 91-78,  og svo með 56 stigum, 114-58. í Nis í Serbíu.

Níu af tólf leikmönnum íslenska liðsins í dag voru með í stórtapinu í Serbíu í lok ágúst 2012 og eiga því harma að hefna. Strákarnir mæta staðráðnir í að ná miklu betri úrslitum í dag.

Þeir þrír leikmenn sem voru ekki með fyrir þremur árum voru þeir Hörður Axel Vilhjálmsson, Martin Hermannsson og Ragnar Nathanaelsson. Í stað þeirra spiluðu þennan leik Brynjar Þór Björnsson, Finnur Atli Magnússon og Sigurður Gunnar Þorsteinsson.

Jón Arnór Stefánsson var með 21 stig og 6 stoðsendingar í fyrri leiknum við Serbíu sumarið 2012, Pavel Ermolinskij skoraði 14 stig, tók 5 fráköst og gaf 5 stoðsendingar og Hlynur Bæringsson var með 13 stig og 8 fráköst.

Í seinni leiknum var Jakob Örn Sigurðarson stighæstur með 14 stig en Hlynur Bæringsson var með 12 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar. Jón Arnór Stefánsson skoraði þá bara 2 stig á 17 mínítum.

Sjö Serbar skoruðu tíu stig í stóra tapinu í Serbíu og tveir að auki voru með 9 stig. Stighæstur var Nenad Krstic með 15 stig en hann er ekki með liðinu núna.

Leikur Íslands og Serbíu hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma og verður fylgst með honum hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Hreinsuðu hugann úti á miðju keppnisgólfi

Hlynur Bæringsson og félagar hans í íslenska körfuboltalandsliðinu mæta Serbum á Evrópumótinu í Berlín í dag, einu af liðunum sem menn spá Evrópumeistaratitlinum í ár




Fleiri fréttir

Sjá meira


×