Menning

Byrjuðum á að bretta upp ermarnar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness, Ingunn og Högni.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness, Ingunn og Högni.
„Við byrjuðum á því að bretta upp ermarnar. Það hafði ekki verið búið í húsinu í mörg ár svo af mörgu var að taka.

Fyrst fengum við fagmenn í glugga og þak en gerðum sjálf það sem við réðum við,“ segir Ingunn Benediktsdóttir um húsið að Sæbraut 1 á Seltjarnarnesi sem byggt var af þjóðinni yfir Jóhannes Kjarval listmálara á sjöunda áratugnum.

Hún og maður hennar, Högni Óskarsson, keyptu það árið 1991 í mikilli niðurníðslu.



1991 Fyrir endurbæturnar.
„Við vissum alltaf af húsinu, höfðum hlaupið fram hjá því og hjólað á námsárunum. Svo þegar við sáum það auglýst stukkum við á það en maðurinn minn segir að svona dæmi sé bara fyrir geðlækna,“ segir hún hlæjandi.

Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt teiknaði húsið, Seðlabankinn átti lóðina, ríkið byggði og Kjarval lagði fram sjóð – ekkert var til sparað.





:2014 Svona er húsið núna.
„Kjarval var ánægður með staðsetninguna en orðinn áttræður þegar hafist var handa og upp úr því fór heilsa hans að bila. Þegar honum voru afhentir lyklarnir gerði hann sig máttlausan á stigapallinum, hljóp út í leigubíl, týndi lyklinum og kom aldrei hingað aftur. Miðað við húsakynnin sem hann hafði búið í var þetta auðvitað stórt og mikið,“ lýsir Ingunn.



Hún segir þess gætt að breyta ekki arkitektúrnum en fyrirhuguð vinnustofa meistarans hafi verið gerð að stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu. „Það er dásamlegt að búa hér,“ segir hún, „friður og fegurð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×