Erlent

Mögulegt brak fundið á nýja leitarsvæðinu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Fimm flugvélar sáu hluti á reki á nýja leitarsvæðinu í dag, sem gætu verið úr týndu flugvélinni. Kínverskt leitarskip er nú á leið á vettvang til að ná mögulega brakinu um borð svo hægt sé að bera kennsl á það.

Frá þessu er sagt á vef BBC.

Yfirvöld í Ástralíu segja í yfirlýsingu að skip þurfi að finna hlutina á nýjan leik svo hægt sé að fá úr því skorið hvort um sé að ræða flak úr vélinni. Mögulega gæti það gerst í nótt eða í fyrramálið.

Fyrst sá áhöfn flugvélar frá Nýja Sjálandi fljótandi hluti. Farið var á ástralskri flugvél til að finna hlutina aftur og sögðust áhafnameðlimir hafa séð ferhyrnda hluti sem væru gráir eða bláir á lit, fljótandi í Indlandshafi.


Tengdar fréttir

Fengu fréttirnar í smáskilaboðum

Aðstandendur farþeganna 239 um borð í vél Malaysia Airlines, sem talin er hafa hrapað í Indlandshaf, eru sorgmæddir og reiðir.

Leitað á nýjum stað á Indlandshafi

Leitarsvæðið á Indlandshafi þar sem talið er að farþegaþota Malaysina Airlines hafi hrapað í sjóinn hefur verið fært til og er það nú mun nær Ástralíu en áður.

Samúðarskilaboð í Malasíu

Ætlast er til að ökumenn votti samúð sína með aðstandendum þeirra 239 farþega sem taldir eru hafa farist með flugi MH370. Skilaboð í þá veru verða á hjálmi hvers ökumanns og bíl. Einnig verður einnar mínútu þögn fyrir keppnina á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×