Sport

Bolur Gunnars sendur víða um heim

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Bolurinn sem Gunnar Nelson klæddist er hann gekk í búrið fyrir bardaga sinn gegn Omari Akhmedov hefur verið sendur víða um heim. Gunnar er orðið þekkt nafn í UFC og á aðdáendur víða.

Bolurinn var hannaður af Finnboga Þór Erlendssyni í samstarfi við Mjölni. Framan á bolnum er galdrastafurinn Veldismagn en sá stafur hefur fylgt Gunnari í síðustu tveimur bardögum og einnig verið á sérsökum stuðningmannabol Gunnars.

Táknið er því orðið nokkurs konar einkennistákn fyrir kappann og komin hefð fyrir því að nota stafinn á boli Gunnars. Þess má geta að hönnuðurinn, Sigurður Eggertsson, útfærði stafinn fyrstur fyrir Gunnar fyrir fyrsta UFC bardaga Gunnars.

„Galdrastafinn má finna í Galdraskræðu Skugga sem hefur að geyma marga skemmtilega galdrastafi. Þar er galdrinum lýst svona: Galdrastafinn skal rista á surtarbrand og bera blóð í skurðinn, og láta liggja milli brjósta þinna og mun þig ekki illt saka og heill og ósjúkur aftur heim koma hvort sem þú ferðast á sjó eða landi,“ segir Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis.



Mjölnismenn hafa lengi notað gömul íslensk og norræn tákn, galdrastafi og rúnir á boli og í merki hjá sér. Sem dæmi ber bardagakappinn Árni Ísaksson ávalt Ægisskjöldinn á bol sínum. Ægisskjöldurinn er íslenskur galdrastafur úr Galdraskræðu Skugga.

Umhverfis galdrastafinn Veldismagn er síðan nafnið hans Gunnars skrifað í miðaldarúnum sem voru notaðar á Norðurlöndunum frá árinu 1000. Á vinstri hlið bolsins er svo galdrastafurinn Gapaldur sem stendur fyrir heppni í bardaga.

Bolurinn hefur verið mjög vinsæll og hefur Óðinsbúð sent yfir 100 eintök út í heim. „Gunnar Nelson er orðið stórt nafn í bardagaheiminum og eðlilega vilja aðdáendur hans eiga bol merktan honum. Við höfum því verið að fá pantanir frá Norðurlöndunum, Frakklandi, Ástralíu, Bandaríkjunum og fleiri löndum“ segir Jón Viðar.

Vísir og MMA fréttir hafa tekið höndum saman í umfjöllun um MMA. Pétur Marinó er ritstjóri MMA frétta og birtir fréttir úr MMA heiminum á Vísi. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér.

MMA

Tengdar fréttir

Í fínu lagi með hnéð á Gunnari

Þó svo Gunnar Nelson hafi unnið frekar léttan sigur á Omari Akhmedov um síðustu helgi í UFC þá slapp hann ekki alveg óskaddaður frá bardaganum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×